Markalaust í bragðdaufum leik

0
684

Það mátti búast við virkilega erfiðum leik í dag fyrir leikmenn Tottenham sem sóttu Everton heim. Fyrr í vetur urðu vatnaskil þegar Everton vann Tottenham á WHL. Eftir það hafa Tottenham ekki tapað á heimavelli. Tottenham hefur haft ágætis tak á Everton í úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir það var Everton spáð sigri í leiknum í dag. Margir lykilmenn Tottenham voru meiddir fyrir leikinn í dag og má þá helst nefna Lennon, Ekotto, Bent, Zokora og Dawson. Þar fyrir utan var Bentley tæpur vegna meiðsla, en var þó hafður á varamannabekknum. Fyrir leikinn varð Tottenham fyrir enn öðru áfallinu þegar fréttir bárust af því að lögreglan á Fílabeinsströndinni rannsaki líkfund sem talinn er vera af bróður Wilson Palacios. Wilson Palacios fékk af þeim sökum frí frá leiknum í dag. Það var því búist við mjög erfiðum leik þar sem við vorum án lykilmanna á heimavelli Everton sem er í baráttunni um 5. sætið.
Greinilegt var að bæði lið fóru varkárnislega í leikinn. Bæði lið pössuðu sig á því að skilja ekki eftir opin svæði þegar þau sóttu og því var sóknarþungi liðana mjög máttlítill. Af þeim sökum var leikurinn mjög tíðindalítill.

 

Tottenham byrjuðu fyrri hálfleikinn betur, þeir voru meira með boltann og náðu að skapa sér nokkur hálffæri. Besta færi fyrrihálfleiksins kom á 18. mínútu þegar Gareth Bale tók aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Everton manna, en skotið fór rétt yfir markið. Fátt annað markvert gerðist í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik 0-0. Seinni hálfleikur fór jafn rólega af stað og sá fyrri endaði. Everton voru þó ögn beittari fram á við og á 58. mínútu átti Cahill gott skot að marki, en boltinn fór rétt framhjá stönginni.  10 mínútum síðar sluppu Tottenhammenn með skrekkinn þegar Gosling átti skot í stöngina hjá Tottenhammönnum. Á 70. mínútu kom hættulegasta færi Tottenham þegar Defoe átti góðan snúning og snéri af sér varnarmenn Everton og átti gott skot að marki, en boltinn rétt framhjá. Á 80. mínútu gerði Redknapp sína fyrstu og einu skiptingu í leiknum þegar hann tók Modric af velli og setti Pavlyuchenko inná í hans stað. Fátt annað markvert gerðist það sem eftir lifði leik og niðurstaðan því  markalaust jafntefli. Leikmenn og stuðningsmenn Tottenham eru líklega sáttir með úrslitin, en þetta er líklega einn leiðinlegasti leikur sem stuðningsmenn beggja liða hafa orðið vitni af á leiktíðinni.

 

Byrjunarliðið: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Bale, Hutton, Jenas, Huddlestone, Modric (Pavlyuchenko), Keane, Defoe.
Varamenn: Cudicini, Bentley, Rose, Gunter, Campbell, Chimbonda, Pavlyuchenko