Unglingalið Tottenham hefur verið að vekja gríðarlega eftirtekt í vetur. Strákarnir hafa verið að slá út lið á heimsmælikvarða og jafnvel unglingalandslið í alþjóðlegum mótum. Tímabilið hefur verið hreint út sagt magnað hjá þeim. Enn og aftur vekja þeir eftirtekt með frábærum árangri. Nú hafa þeir unnið sinn riðil í deildarkeppninni. Deildarkeppni U-18 ára liða er skipt í fjóra riðla (A,B,C og D). Í hverjum riðli eru 10 lið. Tottenham sem keppti í B riðli vann riðilinn nokkuð sannfærandi. Þeir töpuðu aðeins tveim leikjum á tímabilinu af 28. Meistararnir úr riðlunum mætast svo í úrslitakeppni til að skera úr um sigurvegara. Þau lið sem komust áfram með að vinna sína riðla eru, Arsenal, Manchester City, Sunderland og að sjálfsögðu Tottenham. Tottenham mætir Sunderland á morgun (13. maí) í undanúrslitunum. Arsenal hefur nú þegar unnið sinn leik gegn City og bíða því úrslita úr leiknum á morgun til að sjá hverjir mótherjar sínir verða í úrslitum. Það væri ekki amalegt fyrir Tottenham að fá úrslitaleik gegn erkifjendunum í Arsenal.
Varaliðið
Nú er tímabilinu í varaliðsdeildinni lokið. Síðasta frétt um varaliðið sagði frá veikri von Tottenham um sigur í deildinni. Þeir þurftu að treysta á að Aston Villa tapaði sínum síðasta leik og við myndum vinna báða leikina okkar. Villa gerði hinsvegar út um möguleika okkar með því að sigra sinn leik. Þar með var ljóst að Tottenham lenti í öðru sæti í varaliðsdeildinni. Þrátt fyrir að hafa ekki unnið eru góðu fréttirnar þær að það er ljóst að hópurinn er gríðarlega breiður og nóg af leikmönnum að banka á dyrnar hjá aðalliðinu, hvort sem það eru leikmenn akademíunnar eða varaliðsins.
EKG






