Sigur í síðasta heimaleiknum

0
633

Tottenham tók á móti Manchester City í síðasta leiknum á White Hart Lane á þessu tímabili. Bæði lið voru fyrir leikinn í baráttu um 7.sætið sem gefur sæti í Europa Cup á næsta tímabili, en það er hið nýja nafn á Uefa Cup. Tottenham tókst að knýja fram sigur á lokamínútum leiksins og gera þar með út um vonir City manna um evrópubolta á næsta tímabili en baráttan stendur núna milli Fulham og Tottenham. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham, þar sem Jermain Defoe kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik en Bojinov jafnaði fyrir City í seinni hálfleik. Robbie Keane innsiglaði svo sigurinn þegar stutt var til leiksloka úr vítaspyrnu. Leikmenn Tottenham höfðu tvöfalda ástæðu til að gleðjast því auk þess að sigra í leiknum bættu þeir 89 ára gamalt met yfir besta varnarárangur á heimavelli, en liðið fékk aðeins á sig 10 mörk White Hart Lane á tímabilinu.

Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn þar sem nokkrir leikmenn voru farnir af sjúkralistanum. Liðið var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Modric, Jenas, Huddlestone og Keane og frammi léku þeir Pavlyuchenko og Defoe. Tréverkið vermdu þeir Cudicini, Bale, Chimbonda, Bentley, Zokora, Hutton og Campbell.

 

Leikurinn fór fjöruglega af stað og hafði Given nóg að gera í marki City allt frá fyrstu mínútunum. Eftir aðeins fjögurra mínútna leik átti Defoe mjög gott skot að marki en Given náði að verja vel. Stuttu síðar átti Pavlyuchenko skot af löngu færi en Given sá við honum sömuleiðis. Einnig var Given vel vakandi þegar King skallaði að marki eftir hornspyrnu sem Huddlestone tók og tókst King því ekki að koma boltanum í netið í þessu leik. Yfirburðir Tottenham í upphafi leiksins voru algjörir en þegar líða tók á fyrri hálfleikinn náðu City menn aðeins að komast inn í leikinn en tilraunir þeirra voru þó bitlausar. Eftir hálftíma leik kom svo fyrsta mark leiksins. Huddlestone sendi góða sendingu inn fyrir teiginn þar sem Defoe náði að pota boltanum framhjá Given í markinu. Staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil og forustan verðskulduð. Keane fékk svo tvö góð færi til að bæta við marki en honum mistókst það þó. Síðasta færi leiksins fékk svo Huddlestone þegar hann þrumaði boltanum í áttina að markinu af löngu færi, líkt og honum einum er lagið en skotið fór framhjá. Staðan því 1-0 í hálfleik.

 

Harry neyddist til að gera skiptingu strax í hálfleik þar sem Woodgate varð fyrir meiðslum og gat ekki haldið áfram. Hutton kom inná í hans stað og fór í stöðu hægri bakvarðar en Corluka færði sig yfir í miðvörðinn. Leikmenn City mættu mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleiks og áttu fyrsta hættulega færi seinni hálfleiksins. Caicedo reyndi að vippa yfir Gomes eftir sendingu frá Ireland en tókst það þó ekki. Eftir klukkustundarleik gerðu City menn tvöfalda skitpingu sem átti heldur betur eftir að borga sig því stuttu síðar skoraði varamaðurin Bojinov jöfnunarmark City og var það fyrsta markið sem skorað er á White Hart Lane síðan í lok janúar. Boltinn barst til Bojinov inni í teig frá Benjani og skaut hann boltanum í efra hornið framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 1-1.  Pavlyuchenko fékk upplagt færi til að koma liðinu yfir en skot hans fór framhjá. á 67.mínútu gerði Harry aðra skiptingu. Jenas fór af velli og Zokora kom inná í hans stað. Stuttu síðar gerði Harry síðustu skiptinguna sína, Pavlyuchenko fór af velli og Campbell kom inná. Bojinov átti skot að marki sem Gomes varði vel og á hinum enda vallarins fékk Modric ágætis færi en skot hans fór framhjá. En þegar um 5 mínútur voru eftir af leiknum fengu leikmenn Tottenham vítaspyrnu. Defoe gaf góða sendingu inn í teiginn á Campbell sem var felldur þar áður en hann náði til boltans og dómari leiksins flautaði vítaspyrnu. Keane steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi framhjá Given í markinu. Staðan orðin 2-1 fyrir Tottenham og svoleiðis urðu lokatölur.

 

Tottenham er því enn í baráttu um 7.sætið en Fulham er tveimur stigum á undan þegar einn leikur er eftir. Þeir þurfa því að tapa sínum leik gegn Everton og Tottenham að vinna Liverpool á Anfield.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate (Hutton), King, Ekotto, Modric, Jenas (Zokora), Huddlestone, Keane, Defoe, Pavlyuchenko (Campbell). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Bale, Chimbonda, Bentley.