FA bikar: Chelsea-Tottenham 3-3

0
626

Þvílíkur leikur. Þvílík sýning. Þvílík dramatík. Þessi leikur hafði allt sem góðan fótboltaleik getur prýtt. Frábært spil, góð mörk, mistök og frábær einstaklingsframtök. Jol gerði nokkrar breytingar á liðinu gegn Braga. Robinson og Keane gátu ekki verið með vegna meiðsla og kom Cerny í markið og Defoe í framlínuna. Chimbonda var hvíldur og tók Stalteri stöðu hans. Gardner var einnig hvíldur og Rocha tók stöðu hans. Þá var Ghaly í byrjunarliðinu en Steed fór á bekkinn.    Við byrjuðum betur en Chelsea og eftir aðeins 5. mínútur lá boltinn í netinu hjá þeim. Defoe átti sendingu á Lennon (spurning hvort hún var ætluð Lennon) sem renndi á Bebatov og hann setti boltan fram hjá Cech. Eftir markið komst Chelsea betur inn í leikinn og á 22. mínútu skoruðu þeir heppnismark þegar Lampard náði að setja tánna í bolta sem stefndi fram hjá markinu. En þá tókum við aftur við okkur og restin af hálfleiknum var okkar. Aðeins 6. mínútum eftir að hafa fengið á okkur jöfnunarmarkið átti Lennon frábæran sprett og fyrirgjöf sem Essien rendi sér fyrir með þeim afleiðingum að boltinn sigldi fram hjá Cech í markið. Spurs voru ekki hættir. Staleri, Berbatov og Ghaly náðu að vinna boltann af Robben og Ghaly tók á rás með boltan upp völlinn, fór á milli varnarmanna og var svosem heppinn að boltinn datt fyrir hann aftur en þá var hann líka kominn innfyrir hripleka vörn Chelsea og setti boltan undir Cech. Staðan orðin 1-3 fyrir Tottenham á Brúnni eftir rúmlega hálftíma leik. Það voru ekki margir að trúa þessu. Chelsea lagði svo allt undir í seinni hálfleik. Það sem varð okkur að falli má segja í seinni hálfleik þar sem þeir skora tvo mörk og jafna var að meðan þeir áttu heimaleik í Evrópukeppninni á þriðjudag áttum við útileik á fimmtudag og liðið kom ekki heim fyrr en á föstudagskvöld. Þá varð Jol að taka Berbatov útaf vegna nárameiðsla og Mido sem kom inn á í staðinn náði sér ekki á strik. Við áttum eina þrjá sjansa að gera fjórða markið en því miður hafðist það ekki. Mourinho gagnrýndi Riley dómara fyrir að dæma með Tottenham en það sáu það allir sem vildu að hann dæmdi Chelsea oft í vil. Robben slapp þegar hann lét sig falla í teygnum, Þrír leikmenn Chelsea sluppu með samskonar brot og Mido og Chaly voru reknir út af vegna og víti var sleppt á Chelsea fyrir að handleika boltann í teignum.
Liðin mætast aftur á mánudag 19. mars kl. 19:45 á WHL.

Liðið: Cerny; Stalteri, Dawson (fyrirliði í fyrsta skipti), Rocha, Lee; Ghaly (Gardner, 81), Zokora, Tainio; Lennon (Malbranque, 76); Defoe, Berbatov (Mido, 66). Varamenn: Burch, Huddlestone.