UEFA: Braga-Tottenham 2-3

0
633

Fyrri leikur Tottenham og Braga í 16. liða úrslitum var leikinn í gærkvöldi fimmtudag á heimavelli Braga. Jol stillti upp sínu sterkasta liði. Lið Tottenham tók völdin á vellinum í fyrri hálfleik og hefði átt að vera komið með tvö þrjú mörk í fyrri hálfleik. Staðan var hinsvegar 0-0. Í seinni hálfleik héldu yfirburðirnir áfram og á 57. mínútu sólaði Lennon nokkra Braga leikmenn og vippaði svo boltanum til Keane sem lagði hann fyrir sig með kassanum og skaut svo viðstöðulausu skoti fram hjá markmanni Braga. Fimmtán mínútum síðar átti Lennon gott skot að marki sem markmaðurinn varði út í teig þar sem Malbranque var og var eftirmálinn auveld fyrir hann. En þá tók dómarinn til sinna ráða og dæmdi víti á Gardner (vafasama) sem Jorge skoraði úr. Á 81. mínútu var svo dómarinn aftur á ferð þegar hann dæmdi aukaspyrnu fyrir utan teig Tottenham (aftur mjög vafasama) sem Braga menn skoruðu úr. Braga semsagt búnir að jafna og við sem héldum að við værum með þetta á hreinu. En jafntefli og tvö útimörk í seinni leikinn. Keane var hinsvegar ekki á því að gefast upp. Hann fékk sendingu frá Zokora og komst einn á móti markmanni og skoraði undir hann. Þar með erum við í góðum málum fyrir seinni leikinn því Braga verða að vinna þar með tveimur mörkum nema þeir skori fjögur mörk. Bestir í liði Tottenham voru Tainio, Keane, Lennon, Berbatov, Dawson og Zokora. 
Liðið:  Robinson, Chimbonda, YP Lee, Gardner, Dawson, Malbranque, Tainio (Huddlestone 74) , Zokora, Lennon, Keane, Berbatov. Varamenn: Cerny, Stalteri, C Lee, Defoe, Ghaly, Taarabt.