Fallnir úr leik í FA cup

0
793

Tottenham féll úr leik í ensku bikarkeppninni þegar liðið beið lægri hlut fyrir Manchester United á Old Trafford. Fyrir leikinn voru vangaveltur um liðsuppstillingu Tottenham eftir ummæli Redknapp í vikunni að hann myndi stilla upp veiku liðið. Svo var þó ekki raunin og mætti Redknapp með nokkuð sterkt lið en þó voru nokkrir lykilmenn fjarverandi vegna meiðsla. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna,  Pavlyuchenko kom Tottenham yfir í leiknum en United menn náðu forystunni með mörkum frá Scholes og Berbatov.

 

Þrátt fyrir yfirlýsingar í vikunni um að stilla upp veiku liði í leiknum, mætti Harry með nokkuð sterkt lið en þó voru margir lykilmenn fjarverandi vegna meiðsla. Í markinu stóð Alnwick sökum meiðsla hjá Gomes og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Gunter, Dawson, Corluka og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Zokora og Bale. Modric spilaði rétt fyrir framan miðjuna og því var Pavlyuchenko einn frammi. Á bekknum sat Gomes þrátt fyrir meiðsli sem og þeir Gilberto, Dervite, Rocha, Taarabt, Defoe og Giovani.

 

Það var skammt liðið af leiknum þegar dró til tíðinda á Old Trafford. Eftir einungis fimm mínútna leik pressuðu leikmenn Tottenham upp völlinn í átt að marki United manna og barst boltinn til Huddlestone sem staðsettur var rétt fyrir utan teiginn vinstra megin á vellinum. Hann sendi boltann fyrir markið þar sem Pavlyuchenko kom aðsvífandi með leikmann United á eftir sér en var á undan í boltann og skallaði boltann framhjá Foster í markinu. Staðan því orðin 0-1 fyrir gestina og stuðningsmenn Tottenham fögnuðu ákaft. Leikmenn United hófu að pressa meira að marki Tottenham til að jafna leikinn og var Tevez einna sprækastur heimamanna. Þegar tæpar 20 mínútur voru liðnar af leiknum átti hann gott skot að markinu en boltinn hafnaði í þverslánni. Stuttu síðar fékk Welbeck boltann á hægri kantinum og lék á varnarmenn Tottenham og var við það að fara að renna boltanum framhjá Alnwick í markinu þegar Gunter kom á sprettinum, fór fyrir skotið og kom boltanum aftur fyrir endamörk. Og ekki var stórsóknum United manna lokið því tveimur mínútum síðar fékk Tevez boltann inni í teig frá Berbatov og skaut að marki en Alnwick varði meistaralega. En eftir 35 mínútna leik kom tveggja mínútna kafli sem reyndist ráða úrslitum leiksins. Manchester United fékk hornspyrnu sem Carrick tók og kom hann boltanum út á miðjan völlinn rétt fyrir utan teiginn. Þar var Scholes staddur og þrumaði boltanum að markinu og með viðkomu í Huddlestone endaði boltinn í netinu. Í endursýningu virðist stefna boltans liggja framhjá markinu og breytir hann um stefnu þegar hann fer í Huddlestone og því spurning hvort um sjálfsmark sé að ræða. En staðan orðin jöfn 1-1. Mínútu síðar sendi Carrick boltann á Berbatov sem komst í gegnum vörn Tottenham og skoraði af öryggi framhjá Alnwick í markinu. Staðan því orðin 2-1 heimamönnum í vil. Bentley átti ágætis skot að marki undir lok fyrri hálfleiks en tókst þó ekki að koma boltanum í netið og því var staðan 2-1 í hálfleik, United mönnum í vil.

 

Redknapp gerði strax skiptingu í hálfleik, Modric fór af velli enda hafði hann verið tæpur fyrir leikinn. Inná í hans stað kom Giovani en þetta var fyrsti leikur hans eftir að Harry tók við stjórn liðsins. Giovani fór á hægri kantinn og Bentley færði sig aðeins framar á miðjan völlinn. Strax á upphafsmínútum seinni hálfleiks fengu leikmenn Tottenham ágætis færi þegar Bentley sendi boltann á fjarstöngina frá hægri kantinum þar sem Bale náði til boltans og komst inn í vítateig en skot hans fór í hliðarnetið. Bentley átti sjálfur skot sem hafnaði í hliðarnetinu stuttu síðar eftir sendingu frá Ekotto en inn vildi boltinn ekki. Seinni hálfleikur var mun rólegri en sá fyrri, bæði lið spiluðu vel sín á milli, gerðu tilraunir til markaskorunar en vörðust einnig vel. Ronaldo komst í ágætisfæri en Alnwick kom út úr markinu á hárréttum tíma og náði til boltans. Giovani var sprækur á hægri kantinum en færði sig yfir á þann vinstri á 67. mínútu þegar Harry gerði breytingu á liðinu, Bale fór af velli og Taarabt kom inná í hans stað. Fjórum mínútum síðar gerði Harry svo síðustu breytingu sína á liðinu þegar hann tók Bentley af velli og inná kom Defoe. En leikmenn Tottenham virtust ekki pressa nógu stíft að leikmönnum United sem héldu sig nokkuð aftarlega á vellinum og náðu því ekki að knýja fram jöfnunarmarkið. Giovani komst þó næst því en skot hans fór rétt yfir þverslánna og því lauk leiknum með sigri Manchester United. Tottenham er því fallið úr leik í FA bikarnum en leikmenn hafa þó nóg að gera á næstunni enda mikil barátta framundan í deildinni auk þess sem úrslitaleikurinn í Carling bikarnum er framundan sem og 32 liða úrslit Evrópukeppninnar.

 

Lið Spurs: Alnwick, Gunter, Dawson, Corluka, Ekotto, Bentley (Defoe), Zokora, Huddlestone, Bale(Taarabt), Modric (Giovani), Pavlyuchenko. Ónotaðir varamenn: Gomes, Gilberto, Rocha og Dervite.

 

SAJ