Cesar Sanchez, sem hefur verið varamarkvörður Tottenham á þessu tímabili, er farinn frá félaginu. Hann gekk til liðs við Tottenham sl. sumar og hefur setið á bekknum sem varamarkvörður liðsins í flestum leikjum síðan þá og einu sinni komið inná sökum meiðsla hjá Gomes. Forráðamenn Tottenham og Cesar sjálfur komust nú að sameiginlegri niðurstöðu að samningi hans verði rift og honum frjálst að ganga til liðs við annað lið.
Við þökkum Cesar fyrir þann tíma sem hann var hjá félaginu og óskum honum velgengni í framtíðinni.






