Þrátt fyrir annasama tíma hjá aðalliði félagsins berast þó einnig fréttir af yngri leikmönnum liðsins. Troy Archibald-Henville, tvítugur leikmaður úr varaliðinu, hefur verið lánaður til Exeter City í einn mánuð og mun án efa öðlast góða reynslu á þeim tíma, en hann var einnig á láni fyrr á tímabilinu en þá hjá Norwich. Einnig berast fréttir af Jon Obika, leikmanni U-18 ára liðsins, en hann skrifaði á dögunum undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við liðið. Obika hefur staðið sig vel með U-18 ára liðinu og bæði fengið að spila með varaliðinu og aðalliðinu. Hann hefur þrisvar verið á bekknum í leikjum aðalliðsins, og komið inná í einum þeirra, gegn NEC Nijmegen í nóvember.






