Tottenham í úrslit deildarbikarsins

0
701

Í kvöld fór fram seinni leikur Burnley og Tottenham í undanúrslitum deildarbikarsins. Tottenham hafði unnið fyrri leikinn 4-1 á heimavelli og því allt sem benti til þess að við myndum sigla inn í úrslitaleikinn. Það var hinsvegar ekki á dagskránni hjá Burnley í þessum leik. Burnleymenn mættu vel stemmdir til leiks og voru staðráðnir í að láta stóra liðið frá London hafa mikið fyrir hlutunum. Það tókst þeim og má Tottenham teljast heppið að hafa sloppið með aðeins eins marks tap. Burnleymenn geta svo sannarlega gengið með höfuðið hátt eftir framgöngu þeirra í keppninni.

Harry Redknapp gerði 6 breytingar á liðinu sem mætti Portsmouth um síðustu helgi. Flestar þeirra voru gerðar sökum meiðsla. Heurelho Gomes, Ledley King, Vedran Corluka, Gareth Bale, Aaron Lennon og Roman Pavlyuchenko var skipt út úr byrjunarliðinu. Liðið var skipað þeim Ben Anwick, Chris Gunter, Michael Dawson, Jonathan Woodgate, Assou Ekotto, David Bentley, Tom Huddlestone, Didier Zokora, Luka Modric, Jamie O‘Hara og Jerimain Defoe. Á bekknum sátu Cesar Sanchez, Gareth Bale, Roman Pavlyuchenko, Adel Taarabt, Frazier Campbell, Giovani Dos Santos og Richardo Rocha.

Leikurinn fór fjörlega af stað. Það var ljóst frá upphafi að Burnley ætluðu að selja sig dýrt í þessum leik. Strax á 6. mínútu reyndi á Ben Alnwick sem var að byrja sinn fyrsta leik með aðalliði Tottenham. Ekotto virðist ætla að senda boltann á Alnwick en sendingin var há og föst og Alnwick nær að setja fingurgómana í knöttinn og afstýra sjálfsmarki hjá Ekotto. Á 7. mínútu átti svo Woodgate ágætis skalla að marki Burnley eftir sendingu frá Bentley, en boltinn fór yfir markið. Það var ekki fyrr en á 34. mínútu að það dró til tíðinda. Burnley fá aukaspyrnu 25 metrum frá marki Tottenham. Robbie Blake tekur spyrnuna fyrir Burnley og skorar með þrumuskoti upp við vinkilinn, og staðan því orðin 1-0 og samanlagt 2-4. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

Á 47. mínútu í síðari hálfleik komust Tottenham nálægt því að skora. Defoe sendir boltann á Luka Modric sem snýr leikur á leikmann Burnley og skýtur að marki við vítateigslínuna. Boltinn fer af Burnley leikmanni og rétt yfir markið. Á 62. mínútu þarf Jamie O‘Hara að fara meiddur af velli og inná kemur Bale sem tekur stöðu hans á vinstri kanti. Harry Redknapp gerir aðra skiptingu á 66. mínútu þegar hann tekur Modric af velli og inná kemur Pavlyuchenko. Á 66. mínútu kemst Defoe inn fyrir vörn Burnley með knöttinn og er því einn á móti Jensen markverði Burnley. Defoe hinsvegar missir jafnvægið og Jensen æðir á móti Defoe og nær að hirða boltann af fótum hans. Á 72. mínútu dregur til tíðinda. Robbie Blake æðir upp vinstri kantinn og fíflar varnarmenn Tottenham og sendir boltann inn í vítateiginn þar sem MacCann lúrir á fjærstönginni og setur boltann í netið. Staðan því orðin 2-0 og 3-4 samanlagt.

Eftir þetta fengu Tottenham menn tvö ágætis færi. Á 77. mínútu fær Pavlyuchenko upplagt tækifæri til að skora þegar hann fær knöttinn frá Bale 7 metrum frá markinu en hittir boltann illa og boltinn fer aftur fyrir endamörk. Á 84. mínútu ver Jensen vel skot frá Bale fyrir utan vítateiginn og ver jafnvel enn betur þegar Defoe nær frákastinu og skýtur að marki. Burnleymenn voru hinsvegar hungraðir í sigur og vissu að eitt mark í viðbót gæti tryggt þeim farseðilinn í úrslitaleikinn. Á 88. mínútu varð Burnleymönnum að ósk sinni. Burnley fá aukaspyrnu frá vinstri og það er enginn annar en Robbie Blake sem tekur spyrnuna. Boltinn svífur inn í teiginn og Ben Alnwick hleypur úr markinu til að slæma hendi í boltann. Úthlaup Anlwick skilar ekki tilætluðum árangri og boltinn fellur fyrir inní vítateig Tottenham fyrir fætur Rodriguz sem hafði komið inná sem varamaður 7 mínútum áður fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson. Rodriguez skýtur boltanum í netið og staðan því orðin 3-0 og 4-4 samanlagt. Þannig stóðu leikar eftir 90 mínútur. Reglur deildarbikarsins kveða á um að sé staðan jöfn eftir venjulegan leiktíma skal framlengt, burt séð frá mörkum skoruðum á útivöllum. Sé staðan jöfn að lokinni framlengingu skulu mörk á útivöllum tekin til greina og vítaspyrnukeppni til þrautavara.

 

Tottenham fór inní framlenginguna með bakið upp við vegg. Ef Tottenham ætti að eiga möguleika á að vinna einvígið og komast í úrslit urðu þeir að skora. Á 4. mínútu framlengingar átti Tom Huddlestone gott skot að marki en Jensen í marki Burnley varði vel. Á 5. mínútu nýtir Redknapp síðustu skiptingu sína og setur ungstirnið Adel Taarabt inná í stað Chris Gunter. Fátt markvert gerðist það sem af lifði fyrri hálfleik framlengingar. Allt stefndi í að Burnley væri á leið á Wembley. Þegar 3 mínútur voru eftir af seinni hálfleik framlengingar dró hinsvegar til tíðinda. Assou Ekotto sendir boltann inn á vítateig Burnleymanna þar sem Pavlyuchenko er réttur maður á réttum stað og kemur boltanum í netið. Staðan er þá 3-1 og 4-5 samanlagt. Nákvæmlega tveim mínútum síðar sleppur Defoe einn inn fyrir vörn Burnley og sendir boltann fram hjá Jensen í markinu og gulltryggir okkur þar með farseðilinn á Wembley. Lokastaðan er því 3-2 fyrir Burnley en 4-6 samanlagt. Við munum því mæta Manchester United á Wembley í úrslitaleik deildarbikarsins.

 

EKG