Ferð á Evrópuleik næsta vetur

0
842

Ég nefndi ferð á Evrópuleik með Tottenham í frétt hér fyrir neðan. Það er nokkuð ljóst að áhugi verður á að sjá liðið okkar spila loksins Evrópuleik en í haust verða sjö ár síðan það gerðist síðast. Stjórnin mun setjast yfir það fljótlega að hefja undirbúning að ferð á slíkan leik. Það eru hinsvegar mjög margir óvissuþættir en í spilunum. 

Fyrir það fyrsta hvað klúbburinn getur fengið marga miða. Þá er spurning hvort skipuleggja á ferð á Evrópuleik eingöngu eða reyna að ná deildarleik í leiðinni. Það eru í raun ekki miklar líkur á að það takist því fyrir áramót mun Tottenham mest spila 3 Evrópuleiki heima þ.e. í fyrstu umferð og ef við komumst áfram þá tvo í viðbót í riðlakeppni. Ef við komumst upp úr riðlinum þá tekur við úrsláttakeppni sem fer fram eftir áramót og fram á vor. Þá líður stuttur tími milli þess að dregið sé og spilað og þá er spurning hvort heimaleikur er fyrri leikur eða seinni. En þetta skýrist allt smám saman.
En aðeins að helstu dagsetningum sem við þurfum að fylgjast með varðandi næsta tímabil og nánara fyrirkomulag
 á UEFA keppninni. Meira mun birtast í Tottenhamblaðinu seinna í þessum mánuði. 

Leikjalisti Úrvalsdeildarinnar verður gefinn út í kring um 22. júní eftir því sem ég best veit. SKY Sport mun tilkynna þær breytingar sem þeir gera vegna sjónvarpsendinga næstu daga þar á eftir. Fyrsta umferð held ég að eigi að byrja 19. ágúst. 25. ágúst er svo dregið í fyrstu umferð UEFA cup en þar byrjum við. Fyrsta umferð fer svo fram 14. september og 28. september. 3. október er dregið í riðla UEFA cup. Fyrirkomulagið þar er að leikið er í fimm liða riðlum þannig að eitt lið situr yfir í hverri umferð. Hvert lið leikur ein sinni við hver andstæðing, þannig að tveir heimaleikir fást og tveir útileikir. Leikdagar eru 19. október, 2. nóvember, 23. nóvember, 29 eða 30. nóvember og síðasta umferð 13 eða 14. desember. Þann 15. desember er svo dregið í 3. og 4. umferð sem eru úrsláttarumferðir þannig að þá er leikið gegn einum andstæðing heima og heiman. Þetta læt ég nægja í bili en meira verður fjallað um Evrópukeppnisfyrirkomulagið í Tottenhamblaðinu.