Ég ætla ekki að dvelja mikið við neikvæðni vegna þessa síðasta leiks okkar á tímabilinu. Að tapa aðeins með einu marki gegn West Ham er afrek út af fyrir sig miðað við það ástand sem var á leikmönnum okkar.
Eins allir vita þá veiktust leikmenn Tottenham hastarlega nóttina fyrir leik og er talið að um matareitrun hafi verið að ræða. Það er þó í rannsókn ennþá. Þar sem Jol fékk ekki að fresta leiknum um sólahring ákvað hann að spila hann á tilsettum tíma enda hefði tveggja tíma frestun ekkert gert fyrir leikmenn okkar. Aðeins þrír leikmenn voru heilir þ.e. Defoe, Gardner og Lee að ég held. Allir sem voru á bekknum voru veikir og aðrir utan við það.
Á pappírunum var þetta okkar sterkasta lið (miðað við meiðsli) ef allt hefði verið í lagi. Það var þó ljóst að við höfðum ekki mikið í West Ham að gera enda sennilegt að þeir hafi breytt um taktík eftir að hafa fengið fréttirnar (ekki að ég lái þeim þess). Á 10. mínútu tekst okkur ekki að loka á mann sem hefur lítið spilað í vetur og ekki gert eitt einasta mark og hann smell hittir hann út við stöng og Robinson ekki nógu snöggur (eðlilega) að henda sér á boltann. Fréttir bárust svo af því að Arsenal væri komið yfir á Highbury svo ekki leit þetta vel út. en á 35. mínútu tekst Defoe að setja mark á snyrtilegan hátt. Svo komu fréttir að Wigan hefði jafnað og svo komist yfir og þá fór þetta að líta betur út þó við vissum af því að erfitt yrði að hanga á jafntefli miðað við ástand á leikmönnum. Arsenal jafnar svo og klárar sinn leik með tveim mörkum í viðbót svo það var ljóst að við yrðum að skora. Það reyndist vonlaust verk og á 80. mínútu ná West Ham að innsigla sigur sinn með marki sem var áægtlega tekið en ljóst að varnarmenn okkar áttu bara ekki roð í þetta. Því fór sem fór.
Við getum verið stolt af árangrinum í vetur. Hver hefði trúað því að við héldum fjórða sætinu í fimm mánuði. Hver hefði trúað því að við enduðum aðeins tveim stigum á eftir Arsenal. Við náðum því takmarki sem að var stefnt Evrópusæti. Þetta lið á bara eftir að batna.
Nú er bara að fara að safna fyrir ferð á Evrópuleik í haust. Meira um það í annari frétt fljótlega.
Liðið: Robinson, Kelly, Gardner, Lee (út 77), Dawson, Lennon, Tainio (út 86), Carrick (út 63), Davids, Keane, Defoe
Varamenn: Cerny, Murphy, Reid (inn 63), Davenport (inn 86), Barnard (inn 77)






