Page 34

Spurs 2 – Sporting Lissabon 2

0

Tottenham mætti Sporting Lissabon í síðari leik sínum á æfingamótinu í Bandaríkjunum á sunnudag, en þetta var sömuleiðis síðasti leikur liðsins áður en það hélt heim á leið til Lundúna. Mikill hiti var þennan dag sem gerði leikmönnum erfitt fyrir. Robbie Keane kom Tottenham yfir en Sporting menn náðu fljótt að jafna leikinn með glæsilegu marki. Staðan var jöfn í hálfleik en Sporting menn náðu yfirhöndinni fljótlega í upphafi síðari hálfleiks. Þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum náði Obika að jafna leikinn og þannig urðu lokatölur.

 

Sporting Lissabon vann mótið á markamun og Robbie Keane var valinn leikmaður mótsins.

New York Red Bulls 1 – Spurs 2

0

Tottenham mætti liði New York Red Bulls á fjögurra liða æfingamóti í Bandaríkjunum, en hin liðin á mótinu eru þau Sporting Lissabon og Manchester City. Thierry Henry, fyrrum leikmaður Arsenal, hafði nýverið skrifað undir hjá Red Bulls og var þetta hans fyrsti leikur fyrir liðið. Hann hóf dvöl sína hjá liðinu með því að skora fyrsta mark leiksins en Robbie Keane jafnaði leikinn. Gareth Bale skoraði svo sigurmarkið og lauk leiknum því með 2-1 sigri Tottenham.

Breytt tímasetning

0

Leiknum gegn New York Red Bulls sem fram fer í kvöld hefur verið seinkað um hálftíma. Leikurinn átti að fara fram á miðnætti í kvöld að íslenskum tíma en honum hefur nú verið seinkað um hálfa klukkustund og hefst því kl. 00:30. Leikurinn er sýndur á nokkrum stöðum, m.a. Ölveri, fyrir þá nátthrafna sem hafa áhuga á að kíkja á leikinn.

San Jose Earthquakes 0 – Spurs 0

0

Tottenham mætti liði San Jose Earthquakes í fyrsta æfingaleik sínum í Ameríkuferð sinni. Leikurinn var frekar tíðindalítill og lauk með markalausu jafntefli.

Harry Redknapp framlengir

0

Tottenham tilkynnti í dag að samningur félagsins við Harry Redknapp hefur verið framlengdur til ársins 2013.

Bournemouth 0 – Spurs 4

0

Tottenham spilaði sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu fyrir komandi tímabil í ensku deildinni þegar þeir heimsóttu Bournemouth á laugardaginn. Ekki var um fullskipað lið Tottenham að ræða þar sem þeir leikmenn sem tóku þátt í Heimsmeistarakeppninni eru enn í sumarfrí. Leiknum lauk með sigri Tottenham 0-4 og mörkin skoruðu þeir Obika, Rose og Pavlyuchenko(2). Því miður var þetta ekki áfallalaus leikur fyrir Tottenham því David Bentley meiddist á ökkla og hafa rannsóknir staðfest að hann verði frá í nokkrar vikur.

Tottenham tekur á móti City í fyrsta leik

0

Leikjaplanið fyrir næsta tímabil hefur verið gefið út og byrjar Tottenham tímabilið á White Hart Lane með því að taka á móti Manchester City. Fyrsti leikurinn við topp fjögur lið verður 30. október þegar liðið heimsækir Manchester United á Old Trafford. Jólaleikirnir eru gegn Aston Villa, Newcastle og Fulham. Nágrannaslagirnir tveir við Arsenal fara fram 20. nóvember og 26.febrúar (WHL).  Síðasti leikur tímabilsins er sömuleiðis á White Hart Lane en þá kemur Birmingham í heimsókn, þann 22. maí.

Aðalfundur á föstudaginn

0

Minnum á aðalfund Tottenhamklúbbsins nk. föstudag á Ölver kl.20. Boðið verður upp á léttar veitingar. Hvetjum alla félagsmenn til að mæta!  Kveðja, stjórnin.

Aðalfundur Tottenham klúbbsins

0

Aðalfundur Tottenham klúbbsins verður haldinn föstudagskvöldið 21. maí næstkomandi á Ölveri í Glæsibæ og hefst kl.20. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

 

1. Skýrsla stjórnar

2. Reikningar síðasta árs

3. Kosning stjórnar

4. Önnur mál

 

Hafi einhver áhuga á að bjóða sig fram í stjórn klúbbsins er viðkomandi bent á að hafa samband við stjórnina á spurs(hjá)spurs.is. Léttar veitingar verða í boði.

 

King og Cudicini skrifa undir nýja samninga

0

Ledley King og Carlo Cudicini hafa gert nýja samninga við félagið en báðir voru þeir að klára núverandi samninga sína. Ledley King gerði nýja samning við félagið til tveggja ára, eða til ársins 2012. Samningur Cudicini við félagið gildir í eitt tímabil til viðbótar, eða til ársins 2011. 

Nýjustu fréttirnar