Page 87

Spurs fengu Southend

0

Búið er að draga í 8 liða úrslit í Deildabikarnum og voru Spurs dregnir gegn 1. deildarliði Southend. Leikurinn verður á White Hart Lane.

Stemmingin á Tottenham-Chelsea. Bogi Á.

0

Þeir voru tímar að kunningjar sem ég hef eignast í gegnum Spurs-listann (http://groups.google.co.uk/group/spurs-list?hl=en-GB fyrir þá sem vilja vera með) hleyptu í brýrnar og ráðlögðu mér að koma ekki á heimaleiki. Ástæðan: Spurs annaðhvort töpuðu eða í besta falli náðu jafntefli þegar ég var á White Hart Lane. Ég kom þangað fyrst 1974 þegar Middlesbro voru í heimsókn í deildarbikarnum og upplifði þá stærsta tap Tottenham í þeirri keppni fyrr og síðar. 1996 var ég einnig til staðar þegar stærsta tapið í Premier league varð staðreynd. Á móti unnu okkar menn ætíð þegar ég sá þá á útivelli, allt frá fyrsta leik á móti Keflavík 1971.

Emil snýr aftur

0

Mbl.is greinir frá því að Emil Hallfreðsson hafi ákveðið að snúa aftur til Tottenham eftir árs lán hjá Malmö í Svíþjóð. Hann segist hafa lært mikið á þessum tíma og telur sig nú betur undir það búinn að gera atlögu að aðalliði Tottenham. Emil lék 19 leiki með Malmö og gerði í þeim 5 mörk og þótti standa sig vel enda vildu menn þar á bæ halda honum til frambúðar.

Tottenham-Port Vale 3-1

0

Það fór um einhverja Spursara þegar Port Vale komst yfir á 64. mínútu í leik okkar í deildarbikarnum í gærkvöldi. Reyndar er einhver spurning hvort um sjálfsmark Dawson sé að ræða en það skiptir ekki öllu. Yfirburðir okkar voru mikklir á vellinum en leikmenn Port Vale neituðu að gefast upp og var markmaður þeirra sérstaklega erfiður því hann átti að minnsta kosti einar sjö topp markvörslur. Aðalega frá Defoe.

Enn er laust í Wigan ferðina

0

Ekki er búið að selja öll sæti í ferðina á Wigan leikinn sem er næsti heimaleikur Tottenham. Liðið hefur heldur betur tekið við sér og því mjög áhugavert að sjá það spila þessa daganna. Heimasigrar á Club Brugge og Chelsea ættu að vera nóg til að samfæra menn um að leikurinn  við Wigan verður veisla. Farið inn á síðu Express Ferða til að bóka hér: http://www.expressferdir.is/viewtrip.php?idt=69&idcat=2

Biðin á enda

0

Það þurfti 16 ár, en biðin var svo sannarlega þess virði. Tottenham lögðu Englandsmeistara Chelsea af velli í dag 2-1, með mörkum frá Michael Dawson og Aaron Lennon.

Spurs 3-1 Club Brugge

0

Tottenham héldu sigurgöngu sinni í Evrópu áfram með 3-1 sigri á belgíska liðinu ClubBrugge í kvöld. Dimitar Berbatov átti sinn besta leik fyrir Spurs, skoraði 2 mörk og lagði upp mark fyrir Robbie Keane.

Dregið í Expressleiknum

0

Búið er að draga í skráningarleiknum sem Tottenhamklúbburinn stóð fyrir í samvinnu við Express Ferðir. Voru þeir sem vildu ganga í klúbbinn og þeir sem fyrir voru félagar kvattir til að skrá sig og greiða félagsgjaldið fyrir 9. september sl. Vinningurinn er ferð með klúbbnum á leik í vetur. Innifalið hótel, flug frá Express Ferðum og miði á völlinn frá klúbbnum. Við í stjórninni þökkum félögum nýjum sem gömlum fyrir góð viðbrögð því 172 borguðu fyrir sett tímamörk. Vinningshafi er Valdimar K. Sigurðsson.

Watford-Tottenham 0-0

0

Ekki varð það svo eins og við stuðningsmenn Spurs vonuðum að liðið væri komið á beinu brautina og næði í auðveld 3 stig gegn Watford.

Blaðið komið út

0

Nú ætti Tottenhamblaðið að vera að berast mönnum og konum í pósti. Með í umslaginu er leikskráin og félagskírteinið fyrir þetta tímabil. (athuga að gildistíma vantar á kortin en hann er til ágústloka 2007).

Nýjustu fréttirnar