Leikmenn Tottenham höfðu greinilega lært sína lexíu þegar þeir mættu MK Dons sem eru í annari deild (samasem fjórðu). Í fyrra féllu þeir úr leik gegn Grimsby í annari umferð en nú var niðurstaðan öruggur sigur á útivelli.
Tottenham-West Ham 1-0
Það er ljóst að Tottenham er smám saman að rétta úr kútnum. Liðið er farið að spila betur og þá koma úrslitin með. Nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu frá leiknum á fimmtudag gegn Besiktas.
Besiktas 0-2 Spurs
Ekki bjuggust margir við góðum úrslitum í Istanbul í kvöld en leikmenn Tottenham sýndu hvað í þeim býr með því að leggja Besiktas af velli 2-0 með mörkum frá Hossam Ghaly og Dimitar Berbatov.
Aston Villa-Tottenham 1-1
Það má segja að mikil dramatík hafi verið í þessum leik sérstaklega fyrir Villa menn. Angel átti sérstaklega skrautlegar 90 sekúndur þar sem hann brenndi af víti og skoraði svo sjálfsmark strax á eftir þegar engin hætta var á ferðum.
En að leiknum í heild.
Ferð á leik Tottenham-Wigan
Nú er um að gera að drífa í að panta sæti í ferð klúbbsins á leikinn við Wigan. Við verðum að hafa nokkurn fyrirvara á pöntun á miðum svo ég bið alla sem eru að spá í að fara að drífa í að panta svo það verði ekki of seint. Utan við að sjá leikinn þá er mjög gaman að vera í London á þessum árstíma rétt fyrir jól og fínt að gera jólainnkaupin í leiðinni.
Ferð á Tottenham – Wigan
Önnur ferð Express ferða og Tottenhamklúbbins á þessu tímabili verður farinn á leik Spurs og Wigan á White Hart Lane þann 26. nóvember. Ferðin er þriggja nátta frá föstudeginum 24. nóv. til mánudags 27. nóv. Gist verður á Jury’s Clifton Ford hótelinu sem er fjögurra stjörnu hótel sem margir Íslendingar þekkja og er staðsett í göngufæri frá Oxford street og því upplagt að gera jólainnkaupin í leiðinni. Verðið er 58.900,- á mann miðað við tvo í herbergi.
Erfiður riðill í UEFA bikarnum
Dregið var í UEFA bikarkeppninni í morgun og er óhætt að segja að Tottenham hafi dregist í hálfgerðan dauðariðil en sá möguleiki var alltaf fyrir hendi þar sem félagið var í neðsta styrkleikaflokki. Nú bíður leikmannanna verðugt verkefni sem þeir vonandi ná að leysa með sóma.
Spurs á sigurbrautina
Langþráður sigur Tottenham kom loksins í gær þegar liðið vann Portsmouth á heimavelli, 2-1. Mörk Spurs komu bæði í fyrri hálfleik og voru það Danny Murphy og Jermain Defoe sem skoruðu. Sigurinn hífði Spurs úr botnsætum deildarinnar en liðið hafði byrjað daginn í fallsæti.
Berbatov á möguleika
Samkvæmt fréttum frá Tottenham í dag á búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov möguleika á að vera með í leiknum gegn Portsmouth á sunnudaginn. Einnig eru aðrir menn að ná sér af meiðslum á meðan Aaron Lennon og Anthony Gardner eru enn meiddir.
Spurs 1-0 Slavia
Tottenham komust áfram á UEFA keppninni á fimmtudagskvöldið þegar Slavia frá Prag voru lagðir af velli 1-0, og 2-0 samanlagt. Mark Spurs var skorað af Robbie Keane en þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu.





