Þrátt fyrir að okkar menn stæðu í Liverpool megnið af leiknum fór sem fór. Flestir segja að vendipunkturinn hafi verið þegar Jenas tókst ekki að skora fyrir opnu marki og Púlarar fóru upp völlinn og skora okkar megin.
Tottenham-Fulham 0-0
Ekki fengu ferðalangar í klúbbferðinni að sjá mörk að þessu sinni. Þó ferðin hafi tekist vel í alla staði vantaði þó það sem menn komu til að sjá, sigur á Fulham.
En að leiknum.
Tottenham treyjur koma ekki fyrr en í febrúar
Við hjá stjórninni athuguðum það hjá Pumabúðinni hvort þeir yrðu með búninga Tottenham til sölu hjá sér þar sem liðið leikur nú í búningum frá Puma. Nú er ljóst að þrátt fyrir vilja forráðamanna Pumabúðarinnar til að selja Tottenham búninga þá koma þeir ekki fyrr en í febrúar.
Evróputúrinn byrjar á sigri
Tottenham lék gegn Slavia Prag í kvöld fyrri leik sinn í fyrstu umferð UEFA keppninnar. Tottenham var betra liðið nær allan tímann og sigraði 0-1 með marki frá Jenas eftir undirbúning Zokora.
Lennon þarf í uppskurð
Það kom í ljós í dag að Arron Lennon þarf að fara undir hnífinn. Það mun þýða um sex vikur frá keppni. Við óskum honum skjóts bata.
Hundraðasti Evrópuleikurinn
Í kvöld kl. 18:00 að íslenskum tíma mun Tottenham leika sinn hundraðasta leik í Evrópukeppni frá upphafi. Andstæðingarnir eru Slavia Prag frá Tékklandi. Leikurinn fer fram í Tékklandi og verður sýndur beint í Ölveri.
Þess má geta að fyrsta leik sinn í UEFA keppni spilaði Tottenham hér á landi þann 14. september 1971 eða fyrir akkúrat 35 árum. Tottenham hefur tvisvar unnið UEFA keppnina.
Versta byrjun í 10 ár
Ekki snerist gæfa Spurs við um helgina þegar liðið mætti Man Utd á Old Trafford. Leikurinn fór 1-0 fyrir heimamönnum en fyrir utan markið, sem kom í fyrri hálfleik, voru liðin frekar jöfn.
Lennon meiddur, King heill
Lennon meiddist á æfingu fyrir helgi og lék því ekki með gegn Utd. Ekki er vitað hvað hann verður lengi frá en vonandi verður hann kominn á fullt upp hægri kantinn fljótlega. King lék hinsvegar sinn fyrsta leik á tímabilinu og er því til í slaginn.
Síðustu dagar til að skrá sig í Fulham ferðina
Það er enn hægt að skrá sig í Fulham ferðina. Síðasti dagur er á morgun sunnudag.
Búið að laga spjallborðið
Það er búið að koma spjallborðinu í lag. Athugið að það þarf að skrá sig aftur inn.





