Page 90

Samstarfinu við Express Ferðir fagnað

0

Fyrir nokkru var haldið upp á samstarfsamning Tottenhamklúbbsins og Express Ferða í Ölveri. Við það tækifæri rituðu forsvarsmenn Express Ferða og stjórn Tottenhamklúbbsins á Tottenham treyju nöfn sín. Samstarfið var kynnt og bornar fram veitingar eins og sjá má á myndum hér á næstu síðu.

Dregið í Fulhammiða leiknum (nokkur sæti laus)

0

Í dag var dregið í Fulham miða leiknum sem við stóðum fyrir. Málið var að einn af þeim sem væru búnir að ganga frá ferðinn á Fulham leikinn, sem við förum á í samvinnu við Express Ferðir, fyrir 1. september fengi miða frítt á völlinn. Sá heppni heitir Gabríel Reynisson. Við munum setja okkur í samband við hann varðandi vinninginn. Til hamingju með það.
Enn eru nokkur sæti laus, en það þarf að hafa hraðar hendur með að skrá sig í ferðina því það er stutt í brottför.  

Hópurinn fullskipaður

0

Leikmannahópur Spurs fyrir fyrri hluta tímabilsins a.m.k. hefur verið fullskipaður eftir annasaman lokadag félagaskiptagluggans. Fest voru kaup á 2 nýjum leikmönnum, þeim Steed Malbranque og Pascal Chimbonda samtals fyrir 8 milljónir punda.

Edgar Davids

0

Edgar Davids er búinn að vera einn af bestu miðvallarleikmönnum Evrópu síðustu 10 árin.

Hann gekk til liðs við Spurs fyrir síðasta tímabil og áhrif hans á liðið voru mikil.

Barátta hans og reynsla mun koma ungu liði Tottenham að notum í Evrópukeppninni.

Nafn
Edgar Davids
Staða
Miðjumaður
Fæðingardagur
13. mars 1973
Kom frá
Inter Milan

Radek Cerny

0

Radek er búinn að vera varaskeifa Paul Robinson síðustu tímabil.

Á þeim tíma hefur hann þó aðeins leikið 3 leiki, þegar Robinson meiddist í maí 2005.

Cerny er reyndur markvörður sem hægt er að treysta ef Robinson meiðist.

Nafn
Radek Cerny
Staða
Markvörður
Fæðingardagur
18. febrúar 1974
Kom frá
Slavia Prag

Mido

0

Eftir að hafa verið í láni hjá Spurs í 18 mánuðui var loksins gengið frá kaupunum á Mido í ágúst 2006

Hann er afar sterkur sóknarmaður sem lætur vel finna fyrir sér í skallaeinvígum.

Nafn
Hossam Ahmed Mido
Staða
Sóknarmaður
Fæðingardagur
23. febrúar 1983
Kom frá
AS Roma

Anthony Gardner

0

Af núverandi leikmönnum Tottenham er Anthony Gardner búinn að vera einna lengst hjá félaginu. Hann var keyptur frá Port Vale árið 2000 og hefur leikið 116 leiki fyrir Spurs síðan þá.

Gardner hefur leikið 1 landsleik fyrir England, þegar hann kom inn á gegn Svíum 2004. Undanfarið hafa meiðsli hins vegar sett svip sinn á feril Gardner og hann lítið leikið.

Nafn
Anthony Gardner
Staða
Varnarmaður
Fæðingardagur
19. september 1980
Kom frá
Port Vale

Mido keyptur til Spurs

0

”Egyptski sóknarmaðurinn Mido sem var í láni hjá Spurs í 18 mánuði síðustu 2 ár er genginn til liðs við félagið frá Roma. Ekki var neitt gefið upp um kaupverðið en leikmaðurinn á þó ennþá eftir að fá atvinnuleyfi.

Express leikur

0

Í tilefni af samningi Tottenhamklúbbsins og Exprss Ferða efnum við til leiks til að fjölga skráðum félögum í Tottenhamklúbbnum. Þeir sem skrá sig í klúbbinn og borga fyrir 9. september nk. fara í pott og dreginn verður einn einstaklingur úr þeim potti. Sá fær gjafabréf frá Express Ferðum. Það er því um að gera að drífa í að skrá sig.

Tottenham-Everton 0-2

0

Eftir góðan fyrri hálfleik gegn Sheff. Utd. og sæmilegan seinni hálfleik áttu héld ég flestir von á að Everton yrðu auðveld bráð sem fyrr. En því miður kom enn einu sinn Tottenham lið fyrri ára í þennan leik og varð sér til háborinnar skammar.

Nýjustu fréttirnar