Á morgun laugardag fyrir Everton leikinn munum við í samstarfi við Express Ferðir halda upp á samstarfsamning okkar og kynna bæði klúbbinn og Express ferðir og þá ferðamöguleika á leiki sem standa félögum Tottenhamklúbbsins til boða. Léttar veitingar verða í boði og nýju tímabili fagnað. Við byrjum kl 13:00 en leikurinn hefst kl. 14:00.
Mætum öll.
Húllum hæ á Ölveri laugardag kl. 13
SK Slavia Praha í UEFA
Við fáum Slavia Praha frá Tékklandi í 1. umferð UEFA. Fyrri leikurinn er úti.
Spurs sigra fyrsta heimaleikinn
Fyrsti sigur Tottenham í deildinni kom í gærkvöldi þegar Sheffield Utd voru lagðir af velli 2-0, með mörkum frá Dimitar Berbatov og Jermaine Jenas.
Aaron Lennon
|
Aaron Lennon gekk til liðs við Spurs fyrir síðasta tímabil frá Leeds. Þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall hefur hann nú þegar leikið fjölmarga leiki og staðið sig afar vel. Aaron er einnig yngsti leikmaðurinn sem hefur leikið í Ensku úrvalsdeildinni, en hann var 16 ára og 129 daga gamall þegar hann kom inn á fyrir Leeds gegn Tottenham í ágúst 2003 |
|
|
Nafn
|
|
|
Aaron Lennon
|
|
|
Staða
|
|
|
Miðjumaður
|
|
|
Fæðingardagur
|
|
|
16. apríl 1987
|
|
|
Kom frá
|
|
|
Leeds
|
Bókaðu sæti á Fulhamleikinn og þú gætir farið frítt á völlinn
Stjórnin hefur ákveðið að veita einum sem fer í ferðina á Fulhamleikinn frían miða á völlinn. Þeir sem ganga frá ferðinni fyrir 1.september fara í pott sem dregið verður úr og sá heppni fær miðan á völlinn endurgreiddan. Koma svo!!!
Ferð á Fulhamleikinn með Express Ferðum
Tottenhamklúbburinn í samstarfi við Express Ferðir efnir til fótboltaferðar á leik Tottenham og Fulham þann 17. september nk. Flogið verður út föstudaginn 15. sept. og komið heim mánudaginn 18. sept. Gist verður á Holiday Inn Bloomsbury. Verðið er 49.900,- og innifalið er flug (Iceland Express), gisting í þrjár nætur og miði á völlinn og fararstjórn. Til að panta sæti í þessa ferð þarftu að smella á þennan link
http://www.expressferdir.is/viewtrip.php?idt=387&idcat=2
Upplýsingar veita þeir Þór og Bragi hjá Express ferðum og Haraldur 698-2109 og Jónas 840-4052 hjá Tottenhamklúbbnum.
Nú er um að gera að skella sér á leik og sjá nýju mennina hjá Tottenham.
Bolton-Tottenham 2-0
Því miður tókst ekki að halda áfram sigurgöngu undirbúningstímabilsins þegar við lékum fyrsta leik okkar í deildinni þetta tímabilið. Það sem olli hvað mestum vonbrigðum var andleysið sem virtist ríkja hjá leikmönnum.
Til hamingju með nýtt tímabil
Þá er biðin á enda. Fyrsti leikur nýs tímabils hefst kl. 16:15. Ég veit að þið hafið beðið spennt eftir þessum degi eins og ég. Tottenhamklúbburinn mun hittast sem fyrr í
Púmabúðin mun selja Spurs treyjur
Ég hef fengið upplýsingar um að Púmabúðin á Laugarvegi 42, Reykjavík muni selja Spurs vörur frá Púma. Hvert úrvalið verður á eftir að koma í ljós en við munum skýra frá því hér á síðunni þegar vörurnar koma í versluninna.
Ferðin á Fulhamleikinn