Búið er að selja Andy Reid á ca. 3 milljónir til Charlton. Andy var keyptur í janúar 2005 og lék aðeins 27 leiki í búningi Tottenham og gerði eitt mark. Við óskum honum velfarnaðar á nýjum vetfangi.
Ferðin á Fulham leikinn
Við höfum orðið varir við mikinn áhuga á ferðinni okkar á Fulhamleikinn og greinilegt að margir eru að skoða málið. Nú þegar eru nokkrir búnir að skrá sig. Við hvetjum menn og konur til að gera það sem fyrst af því við þurfum alltaf einhvern tíma til undirbúnings. Því fyrr því betra. Það er aðeins mánuður í að farið verður í loftið.
Taplausir í æfingarleikjunum
Í gær laugardag spilaði Tottenham síðasta æfingarleik sinn fyrir komandi tímabil. Andstæðingarnir voru Real Sociedad frá Spáni. Leikurinn endaði 2-1 sigri. Mörkin gerði Defoe og Dawson. Ég sá leikinn ásamt bróður mínum Þorsteini og þakka ég honum fyrir þetta tækifæri á að sjá liðið spila. En að leiknum.
Ferð á Fulham leikinn í samstarfi við Express Ferðir
Tottenhamklúbburinn í samstarfi við Express Ferðir efnir til fótboltaferðar á leik Tottenham og Fulham þann 17. september nk. Flogið verður út föstudaginn 15. sept. og komið heim mánudaginn 18. sept. Gist verður á Holiday Inn Bloomsbury. Verðið er 49.900,- og innifalið er flug (Iceland Express), gisting í þrjár nætur og miði á völlinn og fararstjórn. Til að panta sæti í þessa ferð þarftu að smella á þennan link
http://www.expressferdir.is/viewtrip.php?idt=387&idcat=2
Upplýsingar veita þeir Þór og Bragi hjá Express ferðum og Haraldur 698-2109 og Jónas 840-4052 hjá Tottenhamklúbbnum.
Nú er um að gera að skella sér á leik og sjá nýju mennina hjá Tottenham.
Jafnt gegn Dortmund 1-1
Tottenham lék næst síðasta æfingarleik sinn í gær gegn Borussia Dortmund í Þýskalandi. Leikurinn var ágætur og áttum við meira í leiknum ef eitthvað var. Murphy skoraði beint úr aukaspyrnu en það var dæmt af vegna meintrar rangstöðu Ekotto. Murphy þótt spila vel í leiknum.
Carrick farinn til Utd.
Það er staðfest og frágegnið að Man. Utd. hefur keypt Michael Carrick fyrir 18,6 milljónir punda. Þetta er met sala hjá Tottenham. Reyndar fær West Ham eitthvað af þessum peningum og það kann að vera að eitthvað af greiðslunum sé háð skilyrðum.
Inter engin fyrirstaða, lokatölur 2-1
Tottenham var rétt í þessu að leggja Inter Milan á White Hart Lane í æfingarleik.
Samstarfssamningur við Express Ferðir
Á föstudag var undirritaður samstarfsamningur við Express Ferðir um ferðir á leiki Tottenham. Samningurinn felur í sér að við munum vinna með Express ferðum að hópferðum á leiki Tottenham og einnig bjóða flug og hótel pakka fyrir félagsmenn okkar sem kaupa miða í gegnum klúbbinn.
Carrick líklega seldur
Félagaskipti Michael Carrick til Man Utd virðast loksins ætla að ganga í gegn eftir mikla umræðu síðustu vikur. Kaupverðið er talið vera um 15 milljónir punda en það er talsverður gróði fyrir Spurs sem keyptu hann á 2,75 milljónir fyrir 2 árum.
Stevenage-Spurs 0-3
Flestir af aðalmönnum Spurs vori í þessum leik enda undirbúningstímabilið vel á veg komið.





