Í gærkvöldi föstudagskvöld var aðalfundur klúbbsins haldiinn. Góð mæting var. Formaður fór yfir starfsemina á síðasta tímabili. Alldrei hafa jafn margir verið í klúbbnum og á síðasta tímabili eða 249. Farin var ein ferð á leik og var það afmælisferð klúbbsins á Tottenham-Everton í október. Auk þess að fara á leikinn var í henni var haldin árshátíð klúbbsins auk þess sem White Hart Lane var skoðað og Robinson fékk afhenta viðurkenningu en klúbbfélagar kusu hann besta leikmann félagsins tímabilið 2004-2005. Tuttugu og fimm fóru í þessa ferð. Tvö blöð kömu út á þessum tíma og leikskrá. Síðasta vetur útvegaði klúbburinn 131 félaga miða á leiki Tottenham og er þá ferðin á Everton leikinn meðtalin.
Velta klúbbsins var á síðasta ári tæpar 2,5 milljónir. Afgangur varð tæplega 370 þús. Það ber þó að hafa í huga að eftir var að greiða tvo reikninga þannig að þetta ár verður væntanlega lærra sem því nemur. Júlíus S. Ólafsson hætti í stjórn og var Sigrún Á. Júlíusdóttir kosin í stjórn í hans stað. Sigrún er dóttir Júlíusar. Hún er að öllum líkindum fyrsta konan í stjórn stuðningsklúbbs á Íslandi.
Á fundinum var kynntur samstarfssamningur sem verið er að leggja lokahönd á við Express ferðir um samvinnu í ferðum á leiki Tottenham næstu tvö árin að minnsta kosti. Þessi samningur verður kynntur hér þegar búið er að ganga frá honum og skrifa undir.
Að lokum var Júlíusi afhent gjöf frá klúbbnum og honum þakkað hans framleg og vinna í þágu klúbbsins.
Einnig var Sigrúnu Á. Júlúsdóttur afhent verðlaun sem hún vann í Getraunaleik klúbbsins í vetur en hún vann með glæsibrag annað árið í röð.
Aðalfundur Tottenhamklúbbsins
Berbatov með tvö
Berbatov opnaði markareikning sinn hjá Tottenham í leiknum gegn Birmingham fyrr í dag. Gerði hann bæði mörkin í 0-2 sigri. Fyrra markið kom á 12. mínútu og það síðara 2. mínútum seinna. Leikurinn fór fram á heimavelli Brimingham. Næsti leikur er á þriðjudag en þá er hinn árlegi leikur við Stevenage.
Liðið: Fulop, Routledge (Ifil, 66), King (Davenport, 66), Dawson, Assou-Ekotto, Huddlestone, Ghaly (Ziegler, 57), Tainio, Defoe (O’Hara, 86), Keane (Murphy, 64), Berbatov (Barnard, 71). Ónotaður varamaður: Cerny.
Defoe með tvö
Þriðji og síðasti æfingarleikur Tottenham í Frakklandsferðinni var leikinn í gær. Andstæðingarnir voru Celta Vigo frá Spáni. Við unnum leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Defoe gerði bæði mörkin í seinni hálfleik en hann kom inn á sem varamaður. Keane lék sinn fyrsta æfingarleik en hann hafði átt í smávægilegum meiðslum. Liðið hefur þá unnið alla æfingaleiki sína til þessa. Næsti leikur er laugardag gegn Birmingham í Birmingham. Enn eiga sex leikmenn eftir að bætast í hópinn en þeir eru í fríi ennþá vegna þátttöku í HM fyrr í sumar. Þetta eru þeir Robinson, Lennon, Carrick, Jenas, Lee og Zokora sem er nýr í hópnum.
Liðið í gær: Cerny, Ghaly (Lee, 85), Assou-Ekotto, Davids (Tainio, 46), Davenport (Dawson, 46), King (Huddlestone, 46), Routledge (Ifil, 65), Murphy (Defoe, 46), Barnard (Berbatov, 46), Keane (McKenna, 70), Ziegler (O’Hara, 65). Ónotaðir varamenn: Fulop, Barcham.
Marney til Hull
Dean Marney hefur verið seldur til Hull. Marney gerði 3 ára samning við liðið. Marney kom upp úr unglingastarfinu hjá Tottenham og varð atvinnumaður í júlí 2002. Hann lék sinn fyrsta leik þegar hann kom inn á sem varamaður í fyrsta leik okkar tímabilið 2003-2004. Frægastur varð hann fyrir tvö mörk gegn Everton á nýjársdag 2005. Við óskum Marney velfarnaðar á nýjum vettfangi.
Nice lagt 0-1
Sigur vannst í öðrum leik Tottenham í Frakklandi. Andstæðingarnir voru Nice. Barnard gerði eina mark leiksins eftir fyrirgjöf frá O’Hara. King lék í 72 mínútur en það er í fyrsta skipti síðan hann varð fyrir meiðslum í lok síðasta tímabils. Þá lék Egypski miðjumaðurinn Ghaly sem margir voru farnir að halda að væri ekki til, en hann er semsagt kominn fram.
Liðið: Fulop, Stalteri (Ifil 89), Ziegler, Huddlestone, King (Murphy, 72), Davenport, Routledge (Defoe, 46), Ghaly, Barnard (McKenna, 85), Tainio, O’Hara. Varamenn ónotaðir: Cerny, Lee, Barcham.
Aðalfundur Tottenhamklúbbsins
Aðalfundur klúbbsins verður haldinn föstudaginn 21. júlí nk. kl. 20:00 á Ölveri í Reykjavík. Dagskráin er venjuleg aðalfundarstörf. Eftir fundinn eru almennar umræður um tímabilið framundan.
Sigur í fyrsta leiknum
Tottenham byrjaði undirbúningstímabilið vel í kvöld með 2-1 sigri á Bordeaux í Frakklandi. Staðan var jöfn lengi vel en Kieran McKenna skoraði sigurmarkið á 88. mínútu. Jermain Defoe hafði komið Spurs yfir í fyrri hálfleik áður en Bordeaux jöfnuðu rétt fyrir hléið.
Æfingarleikur gegn Real Sociedad
Tottenham tekur á móti Real Sociedad á White Hart Lane þann 12. ágúst. Þetta er liðið sem við gerðum jafntefli við 1-1 í Peace Cup fyrir síðasta tímabil sem tryggði okkur sæti í úrslitum í þeirri keppni.
Æfingarleikir framundan
Það styttist nú mjög að boltinn fari að rúlla hjá okkar mönnum í London. Liðið mun fara til Frakklands og leika þar þrjá leiki. Fyrst mæta þeir Bordeaux þann 13. þessa mánaðar í Albertville. Daginn eftir spilar Tottenham við Nice í Thonon. Síðasti leikurinn er svo gegn spænska liðinu Celta Vigo 18. júlí í Annecy.
Fyrsti leikurinn heima í Englandi er þann 22. gegn Birmingham í Birmingham og svo árlegi leikurinn við Stevenage þann 25. júlí. á heimavelli Stevenage.
Þá er komið að stórleik á White Hart Lane sjálfum þegar Inter Milan kemur í heimsókn. Sá leikur fer fram 30. júlí. Annar stórleikur er svo 5. ágúst en þá fer liðið til Þýskalands og spilar við Borussia Dortmund á þeirra heimavelli sem nú er einmitt notaður í HM. Ekki er búið að tilkynna fleiri æfingaleiki en deildin hefst svo 19. ágúst. Ekki er vitað á þessari stundu hvort eitthvað af þessum leikjum verði sjónvarpað, en það verður að teljast líklegt, en við munum láta vita um leið og fréttir berast af því.
Zokora hefur skrifað undir
Það var tilkynnt í dag að miðjumaðurinn Didier Zokora sem er frá Fílabeinströndinni hafi verið keyptur frá franska liðinu St. Etienne. Zokora er 25 ára og hefur getið sér gott orð í Frakklandi og hann þótti spila vel í HM með landsliði sínu.





