Page 94

Kelly til Birmingham

0

Búið er að ganga frá sölu á Stephen Kelly til Birmingham. Kelly lék sinn fyrsta leik fyrir okkur í desember 2003 gegn Charlton á White Hart Lane. Hann lék alls 43 í aðalliðinu og gerði í þeim tvö mörk. 

Við óskum honum velfarnaðar hjá nýju liði.

Annar fransmaður í hópinn

0

Búið er að tilkynna að við höfum keypt franskan 22 ára vinstri bakvörð frá Lens. Þessi drengur þýkir mikið efni og lék með Lens í deild, Inter Toto og svo UEFA bikarnum á síðustu leiktíð. Hann getur einnig spilað á vinstri kantinum og vinstra megin á miðjunni.

Einn nýr til framtíðar

0

Fyrirliði franska, undir 18 ára landsliðsins, Dorian Dervitte hefur skrifað undir samning við Tottenham. Hann kemur frá Lille. Þessi strákur er varnarmaður og mjög stór og sterkur. Comolli segir að hann hafi alla burði til að ná langt í framtíðinni með okkur.

Fréttir af leikmannamálum

0

Tottenham hefur nýtt sér rétt í samningi við Steven Kelly til að semja við hann í eitt ár í viðbót. Hinvegar hefur Mido snúið aftur til Roma og verður því ekkert af því að hann sé keyptur. Þá hafa samningar Naybet og Bunji runnið út og eru þeir því farnir frá félaginu.
Af leikmönnum varaliðsins og unglingaliðsins er það að frétta að Charlie Daniels, Tommy Forcast, Andy Barcham og Cherlie Lee ásamt Robert Burch hafa allir skrifað undir framlengingu á sínum samningum. Chris Riley hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning.
Þeir Marcel Mckie, Nathan Peprah-Annan og John Kyriacou hafa verið losaðir undan samningi og Richard Heller er farinn til Sudbury og Claude Seanla er farinn til Watford.
Klúbburinn óskar þeim sem eru farnir farsældar í nýjum verkefnum og þakkar þeim þeirra framlag og við óskum þeim sem fá nýja samninga til hamingju með það.

Dawson í landsliðshópinn

0

Búið er að kalla á Dawson í varahóp landsliðsins eða það sem Englendingar kalla "standby group" en það eru fimm leikmenn sem eiga að vera til taks ef einhver úr 23 manna hópnum meiðist. Defoe er einnig í þessum hóp. Kallið kom eftir að fyrrum Spursari Luke Young var að draga sig út úr "standby" hópnum vegna meiðsla. Dawson mun æfa með liðinu á næstu dögum. Þetta þýðir að Tottenham á nú sex leikmenn í landsliðinu sem undir býr sig fyrir HM.  

Dimitar Berbatov keyptur

0

Það er búið að staðfesta að við höfum keypt Búlgarska framherjan Dimitar Berbatov frá Bayer Leverkusen á ca. 10,9 milljónir punda. Þetta er gríðarlega góðar fréttir. Berbatov er 25 ára og hefur verið hjá Leverkusen í fimm ár.

Spurs gerir risasamning

0

Það var tilkynnt í morgun að Mansion yrði næsti stuðningsaðili (sponsor) Tottenham. Búið er að skrifa undir samning sem gefur Tottenham 34 milljónir punda á fjórum árum eða 8,5 milljón á ári. BBC segir þetta vera meðal 10 stærstu samninga í heiminum af þessari gerð.
Mansion er leikja og afþreyingarfyrirtæki á netinu skráð í Gíbraltar. Það er ljóst að þessi samningur er gríðarleg lyftistöng fyrir Tottenham og veitir ekki af til að festa okkur í sessi meðal þeirra bestu eftir að hafa tryggt þátttöku í Evrópukeppni næsta vetur.   

Ferð á Evrópuleik næsta vetur

0

Ég nefndi ferð á Evrópuleik með Tottenham í frétt hér fyrir neðan. Það er nokkuð ljóst að áhugi verður á að sjá liðið okkar spila loksins Evrópuleik en í haust verða sjö ár síðan það gerðist síðast. Stjórnin mun setjast yfir það fljótlega að hefja undirbúning að ferð á slíkan leik. Það eru hinsvegar mjög margir óvissuþættir en í spilunum. 

Sorglegur endir á góðu tímabili

0

Ég ætla ekki að dvelja mikið við neikvæðni vegna þessa síðasta leiks okkar á tímabilinu. Að tapa aðeins með einu marki gegn West Ham er afrek út af fyrir sig miðað við það ástand sem var á leikmönnum okkar.

7 leikmenn Tottenham fengu matareitrun

0

Leikur West Ham og Tottenham fer fram kl. 14:00 í dag þrátt fyrir að 7 leikmenn Tottenham hafi fengið matareitrun í morgun. Það verður að segja að þetta er skrítinn tilviljun svona rétt fyrir leik sem ræður úrslitum um það hvort Arsenl lendi undir okkur í deildinni. Nú er bara að koma eins og grenjandi ljón og rúlla þessu West Ham liði upp og sína Arsenal mönnum að við látum ekkert stoppa okkur.

Nýjustu fréttirnar