Page 95

Varaliðið náði ekki að vinna varaliðsdeildina

0

Varaliðið tapaði leik sínum við varalið Man. Utd. í kvöld 2-0 en leikurinn var úrslitaleikur varaliðsdeildarinnar. Utd. reyndist sterkari eiginlega allan leikinn þó sést hafi fínir sprettir hjá strákunum okkar. Vegna meiðsla hjá lykilleikmönnum voru nokkrir fastamenn ekki með og má þar nefna Huddlestone, Kelly og Barnard. Munar um minna. Ungir strákar fengu því að spreyta sig og munu búa að þessari reynslu. Því miður meiddist Burch markmaður Tottenham undir lokinn en óvíst er um hversu alvarleg þau meiðsli eru.

Liðið: Burch, McKenna, McKie (Martin, 46), Marney, Lee, Bunjevcevic, Lewis (Riley, 46), Jackson, Barcham (Hamed, 80), Dawkins, Maghoma. Varamenn: Forecast, Mills

Varaliðið í Ölveri í kvöld

0

Í kvöld leikur varalið Tottenham gegn varaliði Man. Utd. á Old Trafford úrslitaleik í varaliðsdeildinni. Með sigri í suðurriðli þessarar keppni komust okkar strákar í úrlsitaleikinn. Leikurinn verður sýndur í beinni á Ölveri kl. 18:30 í kvöld. Því er upplagt að kíkja í Ölver og skoða framtíðarmenn okkar.  

King skrifar undir

0

Fyrirliði Tottenham Hotspur skrifaði á þriðjudag undir nýjan samning við félagið sem er 4 ára viðbót við núverandi samning. Samningurinn bindur enda á þær vangaveltur sem hafa verið um framtíð fyrirliðans en hann sýnir með samningnum að hjarta hans liggur á White Hart Lane.

Keane verður tæpur fyrir helgina

0

Eins og flestir tóku án efa eftir spilaði Robbie Keane ekki með Spurs í síðari hálfleik í leiknum gegn Bolton í fyrradag. Hann sagði sjálfur í viðtali eftir leikinn að meiðslin væru ekki slæm en hann ætti eftir að fara í skoðun sem myndi gefa frekari niðurstöður.

Rasiak farinn fyrir fullt og allt

0

Southampton hafa gengið frá kaupunum á Gregorz Rasiak en hann fór þangað í láni í janúar. Það má segja að dvöl Rasiak hjá Spurs hafi verið frekar dapur þar sem honum tókst ekki að skora mark í þeim leikjum sem hann spilaði.

Loksins sigur á Bolton!

0

Það kom loksins að því að Tottenham bar sigurorð af Bolton eftir tap í síðustu sex  viðureignum liðanna. Leikurinn var síðasti heimaleikur Tottenham á tímabilinu og lauk með 1-0 sigri og var það Aron Lennon sem skoraði sigurmarkið.

Tottenhamblaðið í vinnslu

0

Það hefur dregist von úr viti að blað klúbbsins komi út. Á því eru margar ástæður en sú helst að tímaskortur/vinnuálag ritstjóra hefur verið mjög mikið í vetur. Við stefnum að því að blaðið komi út fljótlega eftir að tímabilinu ljúki með ýmsu efni um tímabilið sem er þegar orðið okkar besta í mörg ár. Seinna blað ársins mun svo koma í ágúst.

Evrópubolti á næstu leiktíð!

0

Tottenham heimsótti Arsenal á Highbury í gær í síðustu viðureign þeirra á þessum velli. Leikurinn var spennandi frá fyrstu mínútu enda bæði liðin að berjast um fjórða og síðasta meistaradeildarsætið. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en stigið tryggði Spurs þó rétt til þátttöku í evrópukeppninni á næstu leiktíð.

Tímabilið búið hjá Kónginum

0

Ledley King leikur ekki meira með Tottenham á þessari leiktíð vegna meiðsla. Staðfest var í morgun að hann er brotinn á vinstri fæti og mun þurfa amk 3-4 vikur að jafna sig. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Tottenham þar sem hann er einn af lykilmönnum liðsins og liðið er enn í hörku baráttu um 4.sætið. Einnig kemur þetta á versta tíma fyrir King því óvíst er hvort hann verði klár í slaginn þegar enski HM landsliðshópurinn verður tilkynntur þann 15.maí og gæti því misst af Heimsmeistaramótinu í sumar.

Tap á heimavelli gegn Man.Utd

0

Annað tap Tottenham á heimavelli á þessari leiktíð varð að staðreynd í dag þegar liðið tapaði fyrir Manchester United. Lokatölur leiksins urðu 1-2 og skoraði Wayne Rooney mörk Man. Utd en Jermaine Jenas mark Tottenham.

Nýjustu fréttirnar