Martin Jol hefur sagt að varnarmaðurinn Anthony Gardner muni ekki yfirgefa félagið í sumar eins og útlit hafði verið fyrir. Fyrir nokkrum vikum síðan leit út fyrir að Gardner væri á leið til Charlton, en það gekk ekki efir og verður hann því áfram í herbúðum Spurs.
Martin Jol sagði að Gardner væri mjög leikreyndur og veitti Ledley King stuðning á komandi tímabili. Jol bætti svo við og sagði: „Hann er ekki að fara neitt.”






