Búið er að tilkynna að hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids er á leið í Tottenham. Hann mun fara í læknisskoðun næstu tvo daga og síðan semja um kaup og kjör. Það þarf ekki að fjölyrða um hverskonar hvalreki þessi leikmaður yrði ef allt gengur upp. Einnig hefur heyrst að verið sé að ganga frá kaupum á Andy Johnson frá Crystal Palace.






