Reading-Spurs 0-2

0
741

Við unnum góðan sigur á Reading í dag laugardag. Fyrri markið kom á 5. mínútu og var þar Dedoe á ferð. Gardner hafði brotið upp sókn Reading á bak aftur og sendi boltan til Routledge sem sendi á Mido eftir að Kelly hafði skapað honum svæði með yfirhlaupi (overlap).

Seinna markið kom í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Sending fram völlinn í átt að Spursmarkinu var hreinsuð fram á Defoe sem lét vaða á markið af 25. metra færi fram hjá markmanni þeirra sem var hjálparlaus á línunni. Reading menn gerðu mark sem var dæmt af og eins stangarskot. Cerny þurfi að fara af velli á 41. mínútu vegna þess að hann skall á stöngina í markinu þegar hann var að verja skot. Burch kom fyrir hann í markið. Vonandi er þetta ekki neitt alvarlegt.
Liðið: Cerny (Burch, 41), Kelly, Ziegler (Bunjevcevic, 81), King, Gardner, Routledge, Reid (El Hamdaoui, 81), Mendes, Tainio, Defoe, Mido. Varamenn: Marney, Jackson