Glæsilegur sigur á Evrópumeisturunum

0
605

Tottenham tók á móti Evrópumeisturum Inter á White Hart Lane í 4. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudagskvöldið. Fyrri leikurinn milli þessara liða á San Siro var stórskemmtilegur en þeim leik lauk með 4-3 sigri Inter. Það mátti því alveg búast við góðum leik og leikmenn Spurs stóðu við það.  Eftir nokkurt jafnræði með liðunum tókst Van der Vaart að koma Tottenham yfir í leiknum eftir sendingu frá Modric, en hann hafði gert vel í að leika á vörn Inter manna. Inter menn komust nálægt því að jafna rétt fyrir lok fyrri hálfleiks eftir aukaspyrnu frá Sneijder en Cudicini varði glæsilega. Staðan var því 1-0 í hálfleik. Van der Vaart þurfti að fara af leikvelli í hálfleik sökum meiðsla og Jenas kom inná í hans stað. Og í seinni hálfleik var komið að Bale að sýna snilli sína. Hann lék hvað eftir annað á varnamenn Inter og átti stoðsendingu á Crouch sem kom Tottenham í 2-0. Inter menn náðu svo að minnka muninn þegar 10 mínútur voru til leiksloka með marki frá Eto´o en lengra komust þeir ekki því leikmenn Tottenham gulltryggðu sigurinn á lokamínútunum eftir enn eitt magnað upphlaup hjá Bale. Hann tók á sprett upp vinstri kantinn og gaf fyrir markið þar sem Pavlyuchenko renndi boltanum í netið. Sigurinn því staðreynd, 3-1 gegn Evrópumeisturum Inter og nældi Tottenham þar með í toppsæti riðilsins eins og er þegar 2 umferðir eru eftir.

Lið Spurs: Cudicini, Hutton, Gallas, Kaboul, Ekotto, Lennon (Palacios 85), Huddlestone, Modric, Bale, Van der Vaart (Jenas 46), Crouch (Pavlyuchenko 76). Ónotaðir varamenn: Pletikosa, Bassong, Kranjcar, Keane.