Tottenham heimsótti Manchester United á Old Trafford í leik helgarinnar. Liðið hefur ekki náð að knýja fram sigur á Old Trafford í deildinni frá því að Úrvalsdeildin var stofnuð og því miður varð ekki breyting á því að þessu sinni. Nemanja Vidic kom Manchester United yfir á 30.mínútu með skallamarki eftir aukaspyrnu. United menn bættu svo öðru marki við þegar stutt var til leiksloka sem þykir mjög umdeilt. Nani var felldur inni í teig en dómarinn dæmdi ekki vítaspyrnu. Nani handlék þá knöttinn áður en Gomes tók hann af honum. Gomes gerði ráð fyrir að flautuð hefði verið aukaspyrna og setti boltann niður inn í teig og gerði sig líklegan til að taka aukaspyrnuna. Nani stóð hinsvegar upp og sá að engin aukaaspyrna var dæmd og spyrnti boltanum í netið. Aðstoðardómarinn vildi dæma markið af en Clattenburg dómari var ekki á sama máli og markið stóð. Leiknum lauk því með 2-0 sigri Manchester United.






