Gunter talar…

0
700

Þegar Welska liðið mætti því Íslenska í vináttulandsleik á vordögum fengum við Chris Gunter til að setjast niður með okkur og svara nokkrum spurningum um komu hans til Spurs sem og liðið sjálft. Við birtum hér smá hluta úr viðtalinu en það mun svo birtast í heild sinni í blaði klúbbsins á næsta tímabili.

1. Hvernig líkar þér lífið hjá Spurs, ertu ánægður með ákvörðun þín að ganga til liðs við félagið? Var það draumur að rætast þegar þú gekkst til liðs við Úrvalsdeildarlið? Hvað var það erfiðasta við að flytja frá Cardiff til London? — G: Já, þetta er frábært, ég er mjög ánægður. Þetta er stór klúbbur. Stuðningsmennirnir eru frábærir og jafnvel fólk á Íslandi styður okkur (Gunter brosir). Hvað varðar leikmenn, þjálfara og völl þá er það allt saman frábært. Það var draumur sem rættist að ganga til liðs við einn af stærstu klúbbunum í deildinni. En það erfiðasta við þetta allt saman myndi ég segja að væri flutningurinn. Að vera 18 ára og flytja að heiman. Ég bjó í foreldrahúsum en það gengur vel að koma sér fyrir í London.

2. Hvað var það sem réði úrslitum í ákvörðun þinni að ganga til liðs við Tottenham? Hafði Bale einhver áhrif á þig? –G: Það sem réði úrslitum var eflaust það að þetta er mjög stór klúbbur. Stjórinn og leikmennirnir frábærir. Þegar lið eins og Tottenham vill kaupa þig þá er það mikið hrós. Ég talaði við Bale rétt áður en ég skrifaði undir og það var fínt. Hann hafði margt gott að segja um félagið svo að já, hann kannski talaði mig aðeins til (Gunter hlær).

3. Langaði þig alltaf að verða atvinnumaður í fótbolta eða hafðir þú einhver önnur framtíðaráform? –G: Já, alveg frá unga aldri, 8-9 ára. Það var alltaf draumur minn að verða atvinnumaður í fótbolta.

4. Þegar þú byrjaðir að spila fótbolta þá spilaðir þú stöðu framherja en skiptir svo yfir í bakvörðinn. Af hverju skiptir þú um stöðu? –G: Ég spilaði sem framherji þegar ég var mjög ungur en eftir að við fórum að spila í 11 manna liðum þá var framherjastaðan aldrei mín staða á vellinum. En ég skoraði nú slatta af mörkum þegar ég spilaði frammi.

5. Hvar sérðu fyrir þér að Spurs endi í deildinni á næsta ári? Helduru að liðið geti veitt topp 4 liðunum harða keppni? –G: Við getum pottþétt keppt við þau. Jafnvel þó að liðið verði eins og það er núna, þá erum við nógu sterkir til að keppa við þau. Og með leikmenn eins og Modric að koma til liðsins þá eru möguleikar okkar enn betri (innskot.. Modric var eini leikmaðurinn sem var kominn til liðsins þegar viðtalið var tekið).

6. Hvernig er Ramos sem þjálfari? Líkar leikmönnum æfingarnar hjá honum? Er hann eins strangur og slúðurblöðin segja? Hvernig myndir þú lýsa honum sem þjálfara? Talar hann enskuna reiprennandi eða er hann eins slæmur í henni eins og við erum látin trúa? –G: Á æfingum þá hefur hann hlutina einfalda, hann er ekkert að flækja málin. Við höfum unnið bikar undir hans stjórn og framtíðin er björt. Enskan hans er góð og hann talar alltaf við okkur leikmennina á ensku. Ef hann lendir í einhverjum vandræðum, þá er Poyet alltaf þarna til hjálpar. Ég veit ekki hvort að það sé hægt að segja að Ramos sé beinlínis strangur, en við erum með okkar reglur. En ég held að það sé þannig hjá öllum klúbbum.

7. Hvernig er Poyet sem aðstoðarþjálfari? Hefur hann mikið um það að segja hvernig liðinu er stjórnað? –G: Hann er frábær náungi, svo góður við leikmennina. Hann getur hlegið og djókað með leikmönnum en einnig verið alvarlegur þegar þess þarf. Hann er mjög náinn þjálfaranum og þeir eru gott teymi.

8. Hvernig er Alvarez, fitness þjálfarinn? Við höfum séð ótrúlegar breytingar á liðinu, er mataræðið strangt og æfingarnar erfiðar? –G: Mataræði er mjög mikilvægt og allir atvinnumenn í fótbolta vita það. Það er undir þér sjálfum komið hvað þú borðar og þú ert í raun það sem þú borðar. Öll sú umfjöllun um form leikmanna og það sem leikmenn áttu að hafa verið að borða eftir að Ramos tók við liðinu var mjög svo blásin upp í fjölmiðlum.

9. Hefur þú bætt þig sem leikmaður á þeim stutta tíma sem þú hefur verið hjá liðinu? –G: Já, ég hef bætt mig síðan ég gekk til liðs við félagið. Með öllum þessum leikmönnum sem ég er að æfa með þá væri ansi erfitt að bæta sig ekki neitt.

Eins og fyrr sagði mun viðtalið birtast í heild sinni í blaði klúbbsins með haustinu ásamt myndum en vegna tæknilegra vandamála var ekki hægt að setja myndirnar hér inn á síðuna.