Levy sendir kvörtun til ensku úrvalsdeildarinnar

0
626

Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, sendi í gærkveldi frá sér yfirlýsingu þar sem hann tilkynnti að félagið hafi sent inn formlega kvörtun til ensku úrvalsdeildarinnar á framkomu og hegðun Manchester United og Liverpool í garð leikmanna Tottenham, þeirra Keane og Berbatov. Telur hann að liðin hafi með ólöglegum hætti haft samband við leikmennina og þar með brotið reglur K3 og K8. Meðfylgjandi er yfirlýsingin frá Daniel Levy:

"Opinber ummæli stjóra Manchester United í dag, þar sem hann tilkynnti að hann hefði gert tilboð í Dimitar og er fullviss um að samningar muni takast og að tíminn er einungis að vinna með þeim, er blygðunarlaust dæmi um hreinan hroka og truflun á einum af leikmönnum okkar. Þetta er að öllum líkindum eitt af verstu brotum sem nokkur stjóri í ensku úrvalsdeildinni hefur gert og er ótrúleg hræsni miðað við nýleg ummæli hans varðandi Christiano Ronaldo og Real Madrid.

Þetta kemur eftir fjölda atvika, allt frá síðasta sumri, þar sem Manchester United hefur brotið gegn reglum ensku úrvalsdeildarinnar. Þar af leiðandi höfum við í dag sent inn formlega kvörtun til ensku úrvalsdeildarinnar vegna framkomu Manchester United. Benitez var með svipuð ummæli í garð Robbie nýlega og við höfum einnig sent inn formlega kvörtun til ensku úrvalsdeildarinnar vegna framkomu Liverpool fyrr í vikunni.

Hegðun beggja félaga hefur verið svívirðileg. Við sögðum báðum klúbbunum mjög snemma að við hefðum engan áhuga á að selja Robbie og Dimitar og þeir ættu að hætta að eltast við leikmennina. Bæði félögin sýndu hroka sinn með því að hunsa þessa ósk okkar og við höfum nú í höndum sönnun þess að bæði félögin hafa markvisst unnið að því að lokka leikmennina frá okkur, utan reglna ensku úrvalsdeildarinnar.

Staða okkar hefur verið verulega skemmd af hálfu beggja klúbba sem hafa lýst yfir áætlunum sínum og hafa haft samband við leikmenn og umboðsmenn þeirra, án leyfis félagsins.

Ég hef nákvæmlega engan áhuga á að selja hvorugan leikmanninn og hef ekki tekið neinu tilboði í þá. Hins vegar, þegar það er á slíkan hátt búið að snúa huga leikmanna og þeir ekki trúir félaginu, sérstaklega þegar þeir spila í lykilstöðum eins og framherjar, þá valda þeir neikvæðum áhrifum í búningsklefa liðsins þar sem þeir voru áður jákvæðir og áhrifamiklir. Þetta er staðan sem við stöndum frammi fyrir núna, þar sem bæði Dimitar og Robbie hafa látið í ljós óskir sínar að ganga til liðs við Manchester Utd og Liverpool.

Óháð því hver útkoman verður með framtíð Robbie og Dimitar, munum við áfram leitast eftir að fá hingað góða og hæfileikaríka leikmenn fyrir framtíðina, sem vilja spila í treyju Tottenham."

DEILA
Fyrri fréttGunter talar…
Næsta fréttTainio til Sunderland