Hópferð Tottenhamklúbbsins

0
1224

Tottenhamklúbburinn á Íslandi verður með hópferð á leik Tottenham – Swansea sem fram fer á White Hart Lane , heimavelli Tottenham sunnudaginn 1. apríl nk.

.

ÖRFÁ SÆTI LAUS

Þá er loksins komið að því , hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi. 
Farið verður á leik Tottenham – Swansea sem fer fram á White Hart Lane sunnudaginn 1. Apríl 2012.

Tottenham hefur verið að standa sig vonum framar á þessu tímabili og eru í 3. sæti deildarinnar sem stendur.  Mikil barátta er framundan um að komast í meistaradeildina að ári og á Tottenham góða möguleika á að hreppa eitt af fjórum efstu sætunum í deildinni og um leið tryggja sér þátttökurétt í meistaradeildinni á næsta tímabili.

Lið Swansea hefur verið að spila skemmtilegan fótbolta í vetur og eru sem stendur um miðja deild.  Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson gekk til liðs við Swansea í janúar á láni frá Hoffenheim og hefur aldeilis staðið sig vel.  Lagði t.a.m. upp sigurmark liðsins

gegn Arsenal um daginn og svo skoraði hann fyrsta mark sitt fyrir Swansea um síðustu helgi.

Von er á skemmtilegum leik milli tveggja liða sem spila góðan fótbolta.

.

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

Flug

Flogið með Icelandair

31. mars              KEF LHR FI 450   07:40     11:40

2. apríl                  LHR KEF FI 455   21:10     23:10

 

Gisting

Holiday Inn Express London City ,       nánar um hótel HÉR

275 Old Street

London  EC1V 9LN

Leikurinn sjálfur á sunnudeginum 1. Apríl kl. 16:00

 

Verð :  93.900.- á mann í tvíbýli

fyrir meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi

 

Aukagjald fyrir einbýli er  15.000 kr.

 

Innifalið : 

Flug báðar leiðir m/sköttum , Gisting í tvær nætur á Holiday Inn Express London City m/ morgunmat , miði á leik Tottenham – Swansea sem fer fram 1. Apríl 2012 , skráning í Tottenhamklúbbinn á Englandi ( sem er skylda fyrir þá sem fá miða ) og íslensk fararstjórn.

ATH. Aukagjald kr. 2.500 fyrir þá sem EKKI eru meðlimir í í Tottenham klúbbnum á Íslandi. Greiðist fyrir brottför hjá klúbbnum.
Hægt er að skrá sig í Tottenhamklúbbinn HÉR:


Meðlimir í Tottenham klúbbnum í UK frá endurgreiðslu upp á 3.000.- fyrir brottför.

Skráning fer fram á heimasíðu VITA  –    farið á skráningarsíðu með að smella á :

SKRÁ SIG 

Skráning í ferðina er hægra megin á heimasíðu VITA –  tegund ferðar :  Sportlíf     Til :  Tottenham