Jafntefli á Craven Cottage

0
615

Tottenham gerði jafntefli við Fulham á Craven Cottege 3-3 þar sem liðið spilaði með yfirburðum en missti niður tveggja marka forystu á síðustu 15 mínútum leiksins. Mörk Tottenham skoruðu þeir Kaboul, Berbatov og Bale.

Martin Jol gerði eina breytingu á liðinu frá síðasta leik, Kaboul kom inn í vörnina í stað Gardner. Kaboul var að koma tilbaka úr meiðslum en Gardner varð hins vegar fyrir því að meiðast í vikunni. Dawson er einnig allur að koma til og fékk sæti á bekknum.

Tottenham hefur ekki náð góðum úrslitum á Craven Cottage undanfarin ár í deildinni en nú var ætlunin að gera breytingu á því. Leikmenn komu ákveðnir til leiks og færin létu ekki bíða eftir sér. Bæði lið byrjuðu af krafti en Tottenham tók fljótt völdin á vellinum. Og það var strax á 10. mínútu að fyrsta markið leit dagsins ljós. Bale tók hornspyrnu á nærstöngina, Niemi reyndi að kýla boltann en hitti ekki og boltinn barst fyrir fætur Kaboul sem kom honum í netið, en þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið. Fulham átti hættulegt færi á 19.mín þegar Robinson náði ekki að halda boltanum eftir ágætismarkvörslu og boltinn barst til Davis en hann skaut rétt yfir. Yfirburðir Tottenham voru töluverðir og á 28. mín kom annað mark leiksins. Chimbonda tók innkast og barst boltinn til Keane sem gaf strax á Berbatov. Berbatov skallaði boltann fyrir lappirnar á sér á meðan hann hljóp að marki og skoraði svo með glæsilegu skoti framhjá Niemi. Jenas, Berbatov, Keane og Malbranque áttu allir góð færi en inn fór boltinn því miður ekki. Hins vegar kom mark á hinum enda vallarins undir lok fyrri hálfleiks þvert gegn gangi leiksins. Fulham fékk hornspyrnu og Dempsey skallaði boltann í netið við nærstöngina. Í hálfleik var staðan 2-1 sem var ótrúlegt miðað við gang leiksins þar sem Tottenham hefði auðveldlega geta skorað fleiri mörk. En þetta var engu að síður staðan í hálfleik.

Seinni hálfleikur var svipaður þeim fyrri. Berbatov átti hættulegt færi með löngu skoti sem Niemi rétt náði að verja yfir. Jenas átti líka gott færi en Fulham áttu sín færi líka enda komnir aðeins inn í leikinn með markinu frá Dempsey. Á 55.mín átti Malbranque dauðafæri, skaut hörkuskot við vítateigspunktinn en boltinn small í stönginni og út aftur. En þriðja markið kom þó loks 6 mínútum síðar.  Kaboul vann skallabolta og boltinn barst til Keane sem kom honum strax á Bale úti á vinstri kantinum. Bale tók á sprettinn og með honum var Berbatov en Bale ákvað að skjóta sjálfur og skoraði, sitt fyrsta mark fyrir Tottenham í öðrum leik sínum fyrir liðið. Jenas átti eftir þetta gott færi og skot Berbatovs var varið á línu. Á 68. mín gerði Jol breytingu á liðinu sem hefur verið umdeild eftir leikinn. Keane var tekinn útaf og Defoe kom inná í staðinn. Á 77 mínútu komust leikmenn Fulham þó aftur inní leikinn með óhappamarki. Smertin skaut að marki en boltinn fór í Rocha og vippaðist yfir Robinson og inn í markið. Við þetta kom líf í leik Fulham og sóttu þeir hart að marki Spurs. Á 85.mín skipti Jol svo Dawson inná í stað Malbranque til að reyna að halda aftur af sókn Fulham sem var orðin nokkuð ágeng. Defoe fékk þó eitt gott færi 3 mínútum fyrir leikslok en ekki fór boltinn. Hins vegar náðu leikmenn Fulham að koma boltanum inn í síðustu sókn leiksins þegar Kamara skoraði með glæsilegu skoti úr hjólhestaspyrnu. Lokastaðan því jafntefli 3-3 en endurspeglaði alls ekki gang leiksins.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Rocha, Kaboul, Lee, Malbranque (Dawson 85), Jenas, Huddlestone, Bale, Berbatov, Keane (Defoe 68).

Ónotaðir varamenn: Cerny, Zokora, Taarabt.