Jol og Reid ángæðir með Davids

0
605

Það er greinilegt að fyrsti leikur Edgar Davids hefur ekki valdið fólki vonbriðgum og hafa leikmenn Spurs og þjálfarinn, Martin Jol, verið afar lofsamir um frammistöðu Hollendingsins í gær. „Þetta var fyrsti leikur hans(Davids) í marga mánuði og hann stóð sig eins og hetja, nákvæmlega eins og ég hafði ímyndað mér. Okkar leikur mun batna bæði líkamlega og andlega hans vegna,” sagði Jol og bætti svo við og sagði að hann hefði leikið eins og hann væri 26 ára og í toppformi.

Andy Reid var einnig mjög ánægður með framtak Edgars í leiknum og sagði hann hafa verið alls staðar. „Edgar var að vinna boltann, tæklandi og á boltanum er enginn betri en hann. Hann er búinn að lyfta öllum, hann lætur heyra í sér í búningsklefanum og á vellinum, sem hver sem er getur gert, en hann gerir það með tilþrifum.”

„Reynsla hans og ákveðni eru að hjálpa öllum í liðinu og það sést, sjálfstraust okkar eykst með hverjum leik,” sagði Andy Reid sen benti einnig á það hefði ekkert að segja þó svo að liðið sé sem stendur í efsta sæti deildarinnar.