Meiðslin sem Wayne Routledge varð fyrir í leiknum gegn Portsmouth um síðustu helgi eru alvarlegri en fyrst var talið. Upphaflega var því haldið fram að hann yrði frá í 2-3 vikur en nú hefur komið á daginn að þetta svokallaða "stress fracture" eða áreynslumeiðsli mun ekki gróa að fyrr en eftir 2 mánuði.
Þetta er að sjálfsögðu áfall bæði fyrir Wayne sjálfan og einnig Martin Jol sem hafði loksins fundið öflugan kantmann á hægri kantinn. Martin Jol sagði: „Við vonuðumst fyrst til að þetta yrðu bara 2 vikur en læknirinn talaði við okkur og sagði okkur að þetta væri verra en það.”






