Defoe með snilldarmark

0
638

Tottenham unnu sinn annan sigur í röð í dag þegar Middlesboro voru lagðir af velli á White Hart Lane, 2-0. Jermain Defoe og Mido skoruðu mörk Spurs en þau komu bæði í seinni hálfleik. Með sigrinum eru Spurs sem stendur í efsta sæti Úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga. Aðeins ein breyting var gerð á byrjunarliðinu frá síðasta leik, Edgar Davids kom inn í stað Wayne Routledge sem meiddist í síðasta leik. Þetta var jafnframt fyrsti leikur Davids fyrir Spurs og er óhætt að segja að baráttuvilji hans hafi smitast til annarra leikmanna í dag.

Leikmenn Spurs voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, án þess þó að skapa sér of mörg færi. Þó átti Michael Carrick fínt skot rétt yfir markið eftir góðan undirbúning hjá Davids og Tainio. Davids byrjaði leikinn af krafti og það fyrsta sem hann gerði í leiknum hefur án efa glatt marga, hann vann tæklingu á móti Ray Parolur og henti síðan fyrrum Arsenal manninum í jörðina á eftir. Middlesboro áttu líka nokkur færi í fyrri hálfleik, og þá sérstaklega eftir hornspyrnu þegar boltinn barst til Hasselbaink sem tókst ekki að hitta markið.

Síðari hálfleikurinn byrjaði með látum og opnaðist leikurinn allt í einu með marktækifærum báðu megin á vellinum. Fyrst misnotaði Hasselbaink gott færi, en mínútu síðar skoraði Jermain Defoe stórglæsilegt mark af 20m færi. Hann fékk boltann á miðjum vellinum hljóp að vítateig Boro og lét vaða á markið, boltinn flaug beint framhjá Schwarzer og í netið, 1-0.

En eftir markið var sem leikmenn Spurs slökuðu og mikið á og áttu leikmenn Middlesboro 2-3 góð færi sem hefðu auðveldlega geta verið mörk, en sem betur fer varði Robinson vel aukaspyrnu frá Downing. Carrick átti svo annað skot sem var ekki langt frá en síðara mark Spurs kom síðan á 75. mínútu þegar Mido átti frekar kraftlítð skot sem Schwarzer missti í gegnum sig og í markið, 2-0.

Eftir seinna markið var sigurinn aldrei í hættu og hefður leikmenn Spurs jafnvel getað bætt þriðja markinu við en það tókst ekki og úrslitin því 2-0. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1994 að Tottenham sigrar fyrstu tvo leiki tímabilsins, en í þá daga var Jurgen Klinsmann að raða inn mörkunum – en í dag er það Jermain Defoe.

Lið Spurs: Robinson 7, Stalteri 8, Edman 5, Gardner 6, Dawson 7, Tainio 8, Reid 7, Davids 8, Carrick 7, Mido 6, Defoe 8 (Keane 76). Varamenn: Cerny, Naybet, Mendes og Lennon.