Leikmenn Tottenham eru ekki aðeins að gera það gott með Tottenham þessa dagana, því nokkrir leikmenn sem hafa farið á lánsamningi til liða í neðri deildunum hafa einnig verið að gera það gott að undanförnu. Þar fer fremstur í flokki Giovani dos Santos sem hefur verið að standa sig hreint frábærlega með Ipswich. Einnig eru nokkrir af okkar mönnum að berjast með liðum í fallbaráttu og einnig með liðum sem berjast um að komast upp um deild. Það er því ekki úr vegi að stikla á stóru yfir það sem hefur verið að gerast hjá lánsmönnunum okkar undanfarnar vikur og mánuði.
Giovani dos Santos (20) : Er á lánssamningi hjá Ipswich þessa dagana. Ipswich siglir þessa dagana lygnan sjó þar sem liðið er í 9. sæti í næstefstu deild og geta því ekki unnið sig upp um deild né fallið. Eins og áður sagði hefur Gio verið að standa sig með stakri prýði. Hann skoraði m.a jöfnunarmark Ipswich gegn Bristol þann 13 apríl. á 94 mínútu úr vítaspyrnu. Einnig skoraði hann mark gegn Norwich um síðustu helgi í 3-2 sigri. Alls hefur Giovani spilað 6 leiki með liðinu, þar af 4 í byrjunarliði og skorað 3 mörk. Einnig var Giovani þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn í lið vikunnar í næst efstu deild eftir leikinn gegn Norwich. Jim Magilton stjóri Ipswich (sem var látinn víkja úr starfi fyrir nokkrum dögum til að greiða leið Roy Keane að stjórastöðunni) hefur hrósað Gio í hásterkt fyrir frammistöðu hans.
Chris Gunter (20): Hefur einnig verið í eldlínunni frá því hann fór á lánssamningi til Nottingham Forrest í næst efstu deild. Gunter hefur verið fastamaður í byrjunarliði Forrest frá því hann kom til þeirra og hefur spilað 6 leiki við góðan orðstír. Forrest hefur verið í miklum erfiðleikum og er enn í bullandi fallbaráttu. Það er því lagt mikið traust á Gunter og víst að hann mun koma reynslunni ríkari til baka.
Adel Taarabt (20): Er einnig að standa sig vel með QPR þessa dagana í næst efstu deild. Hann hefur verið þátttakandi í öllum leikjum liðsins frá því að hann kom til liðsins og náð að skora eitt mark. Hann hefur verið í byrjunarliðinu í 5 leikjum, en komið inná sem varamaður í 2 leikjum. QPR siglir nú lygnan sjó í deildinni þar sem þeir eru í 11 sæti og eiga hvorki möguleika á að vinna sig upp um deild, né eiga þeir á hættu að falla.
Danny Rose (19): Hinn 19 ára gamli miðjumaður sem hefur verið að standa sig vel með vara- og unglingaliði Tottenham hefur verið að standa sig ágætlega hjá Watford. Watford sem nú er svo gott sem komið úr fallbaráttunni í næst efstu deild sitja sem stendur í 16. sæti (af 24). Danny Rose hefur fengið að spila 2 leiki sem byrjunarliðsmaður og í þrígang hefur hann komið inná sem varamaður.
Dorian Dervite (21): Varnarjaxlinn ungi hefur verið fastamaður hjá Southend í vetur. Southend á enn veika von um að ná 6. sætinu í 1. deildinni (gömlu 3 deildinni). Dervite er eins og áður segir fastamaður og hefur reynst Southend mikill liðsstyrkur í vetur. Hann hefur spilað 16 leiki með liðinu og alla sem byrjunarliðsmaður. Þess má geta að hjá Southend er Lee Barnard fyrrum Leikmaður Tottenham einnig að gera gott mót.
Andros Townsend (18): Hinn ungi fótfrái kantmaður hefur einnig verið að standa sig vel á lánsamningi sínum hjá Yeovil Town. Townsend hefur verið fastamaður í liðinu frá því hann kom og leikið gríðarlega vel. Hann hefur komið með mikið líf í sóknarleik Yeovil og kunna stuðningsmenn þeirra vel að meta framlag hans. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í síðustu umferð.
Jonathan Obika (19): sóknarmaðurinn knái spilar einnig ásamt liðsfélaga sínum A. Townsend hjá Yeovil Town. Líkt og Townsend hefur Obika strax stimplað sig inn sem fastamaður hjá Yeovil. Obika hefur nú skorað 3 mörk í þeim 8 leikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið. Báðum hefur verið tekið opnum örmum og greinilegt að þarna eru gríðarlega efnilegir menn á ferðinni. Yeovil er sem stendur 4 sætum frá fallsæti þegar 2 umferðir eru eftir. Það er því allar líkur á því að Tottenham tvíeggið muni halda Yeovil uppi í 1. deild (gamla 3. deildin).
David Hutton (20): Miðjumaðurinn ungi hjá Tottenham er þessa dagana á láni hjá Cheltenham Town í fyrstu deild. Útlitið hjá Cheltenham er því miður ekki gott þessa dagana þar sem liðið er fallið. Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að tveir Tottenhamleikmenn hafa verið að standa sig ágætlega hjá þeim. David Hutton hefur ekki alveg náð að negla byrjunarliðssætið en hefur þó byrjað einn leik og komið inná í tveim. Hann hefur einnig náð að skora eitt mark.
Yuri Berchiche (19): Hinn ungi og efnilegi varnarmaður Tottenham er einnig á láni hjá Cheltenham. Hann hefur staðið sig ágætlega og verið meira og minna fastamaður í byrjunarliðinu. Hann hefur spilað 5 leiki og alla sem byrjunarliðsmaður.
Troy Archibald-Henville (21): Leikur nú með Exeter City í 2. deildinni (gömlu 4 deildinni). Troy, sem bar fyrirliðabandið fyrir varalið Tottenham á síðustu leiktíð hefur stimplað sig rækilega inn í vörn Exeter sem berst nú fyrir því að ná öðru sætinu í þriðjudeildinni (gömlu 4. deildinni). Það myndi þýða að þeir myndu sleppa við umspil. Troy hefur verið fastamaður í vörn Exeter og spilað 17 leiki frá því hann kom til liðsins í janúar.
Tomas Pekhart (20): Sóknarmaðurinn efnilegi er nú á láni hjá Slavia Prag. Liðið er sem stendur í efsta sæti með 8 stiga forskot þegar 5 umferðir eru eftir. Pekhart hefur staðið sig ágætlega með liðinu og spilað 8 leiki og skorað 2 mörk. Eitt af þessum mörkum reyndist sigurmark á 87 mínútu eftir að Pekhart hafði komið inná sem varamaður á 81 mínútu.
Fyrir þá sem eiga erfitt með að skilja þetta deildarfyrirkomulag eins og undirritaður þá kemur hér listi yfir deildirnar:
Premier League
Coca Cola Championship
Coca Cola league 1 (fyrsta deild)
Coca Cola league 2 (önnur deild)
EKG






