Tottenham tók á móti Newcastle á White Hart Lane á sunnudaginn í 33.umferð deildarinnar. Newcastle hefur haft nokkra yfirhönd í einvígum liðanna síðustu ár og fyrir leikinn hafði Newcastle unnið síðustu sex viðureignir liðanna í deildinni og hafa leikirnir yfirleitt boðið upp á markaveislu. Fyrri leik liðanna þann 21.desember lauk með 2-1 sigri Newcastle en segja má að gengi beggja liða sé gjörólíkt eftir þann leik. Tottenham hefur komist á góða siglingu, unnið 6 leiki, gert 4 jafntefli og tapað 4 leikjum en hafa þó ekki tapað á heimavelli og því erfitt fyrir Newcastle menn að mæta á White Hart Lane. Newcastle hafði hins vegar aðeins unnið einn leik frá sigri þeirra á okkar mönnum og þurftu svo sannarlega á stigunum að halda í þessum leik enda í bullandi fallbaráttu. Leikmenn Tottenham voru þó staðráðnir í að tapa ekki enn einum leiknum gegn Newcastle og svo varð raunin, Tottenham sigraði 1-0 með marki frá Darren Bent.
Harry gerði tvær breytingar á liðinu frá síðasta leik, Palacios kom aftur í liðið eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik og Dawson kom inn í hjarta varnarinnar þar sem King var meiddur. Liðið var því þannig skipað: Gomes stóð í marki og vörnina skipuðu þeir Corluka, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Palacios og Modric og frammlínuna skipuðu þeir Keane og Bent. Á bekknum sátu þeir Cudicini, Hutton, Bale, Zokora, Bentley, Campbell og Defoe, en þetta var fyrsti leikur Defoe síðan hann braut ristarbein í janúar.
Fyrir leikinn risu stuðningsmenn, leikmenn og aðrir sem á vellinum voru úr sætum og klöppuðu í eina mínútu til heiðurs Jimmy Neighbour sem lést fyrir nokkrum dögum. Hann lék með liðinu á árunum 1966-1976 og lék alls 156 leiki fyrir liðið. Að þeirri stund lokinni hófst leikurinn og náðu leikmenn Tottenham fljótlega yfirhöndinni í leiknum. Strax á upphafsmínútunum gerðist umdeilt atvik. Leikmenn Tottenham sóttu hratt upp völlinn þar sem Modric sendi góða sendingu inn fyrir á Darren Bent sem var að komast einn á móti markverði. Bent var hins vegar haldið aftur af Bassong sem tók hressilega í treyju hans og vildu margir meina að hann hefði átt að fá reisupassann fyrir vikið þar sem Bent var kominn einn í gegn. En hvorki dómari né aðstoðardómari dæmdu á brotið og má segja að Newcastle menn hafi verið heppnir að vera með fullskipað lið í leiknum. Leikmenn Tottenham virtust mun sterkari án þess að skapa sér mjög hættuleg færi á fyrstu mínútunum. Eftir korter kom fyrsta hættulega færi leiksins. Modric og Huddlestone tóku stutta hornspyrnu og boltinn barst svo til Bent sem skaut að marki en Harper varði. Níu mínútum síðar gat Harper þó lítið gert við skoti Bent. Tottenham fékk hraðaupphlaup og Modric reyndi að senda stungusendingu á Keane en Bassong komst í veg fyrir sendinguna. Boltinn barst þó til Bent sem skaut að marki. Harper náði að verja skotið en náði ekki að halda boltanum og hann barst aftur til Bent sem skoraði af þröngu færi. Staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil. Þegar rétt tæpur hálftími var liðinn af leiknum átti Huddlestone 2 skot að marki með nokkurra mínútna millibili sem voru nálægt því að fara inn en Harper varði vel. Voru þetta þrumuskot af löngu færi eins og Huddlestone er þekktur fyrir. Á 34. mínútu varð Tottenham fyrir áfalli þegar Dawson lenti illa á vinstra fætinum eftir skallaeinvígi og virtist sárþjáður. Var hann borinn af velli í spelkum og þarf að gangast undir frekari rannsóknir til að komast að því hversu alvarleg meiðslin eru. Hutton kom inná í hans stað og tók stöðu hægri bakvarðar og Corluka færði sig yfir í miðvörðinn. Síðasta hættulega færi fyrri hálfleiks fékk svo Darren Bent þegar Hutton gaf góða sendingu á fjærstöngina en Bent náði ekki að skalla boltann nógu vel til að hann færi í netið. Staðan í hálfleik var því 1-0.
Newcastle menn gerðu eina skiptingu strax í hálfleik enda varla verið með í fyrri hálfleik og í raun heppnir að vera einungis einu marki undir.






