Lennon hjá Spurs til 2012

0
663

„Aaron Lennon hefur skrifað undir nýjan 5 og hálfs árs samning við Tottenham. Það er því greinilegt að framtíð hans liggur hjá Tottenham Hotspur.

Um undirskrift nýja samningsins hafði Martin Jol þetta að segja: „Aaron er búinn að nýta tækifærin sín og gera sig að fastamanni í liðinu á skömmum tíma, að maður gleymir oft hve ungur hann er.”

Lennon hefur tekið miklum framförum frá því að hann kom til Spurs og var m.a. í landsliðshópi Englendinga á Heimsmeistaramótinu síðastliðið sumar.

„Mér líður vel hjá félaginu og ég er virkilega að njóta þess að spila fótbolta. Það er góður andi í hópnum og það er enn allt opið á þessu tímabili,” Sagði Lennon.