Tottenham heimsótti Sunderland á Stadium of Light í leik helgarinnar. Sunderland menn hafa ávallt verið erfiðir heim að sækja og í þetta skiptið náðu þeir forystunni snemma leiks með marki frá Gyan. En leikmenn Tottenham hafa ekki verið þekktir fyrir að gefast upp, enda það lið sem flest stig hefur fengið frá því að lenda undir í leik og hafa því stundum verið nefndir "Endurkomukóngarnir". Dawson jafnaði leikinn með skallamarki eftir hornspyrnu og það var svo Niko Kranjcar sem kom liðinu til bjargar á ný með sigurmarkinu á 57.mínútu, en hann skoraði einnig sigurmark síðasta leiks gegn Bolton. Leiknum lauk því með 1-2 sigri Tottenham.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Gallas, Dawson, Ekotto, Pienaar (Lennon 77), Jenas, Sandro, Kranjcar, Defoe (Palacios 88), Pavlyuchenko. Ónotaðir varamenn: Cudicini, Khumalo, Bassong, Woodgate, Crouch.






