Naumur Sigur gegn Birmingham

0
678

Margir reiknuðu með auðveldum sigri toppliðs Tottenham gegn Birmingham á laugardaginn. Annað átti hinsvegar eftir að koma á daginn. Bæði lið komu inn í leikinn með bikarsigur frá miðvikudeginum í farteskinu. Tottenham hafði fyrir leikinn upplifað bestu byrjun liðsins í 49 ár, og sigrað alla sína leiki í deildinni og sat á toppi deildarinnar fyrir leiki dagsins. Birmingham var hinsvegar um miðja deild með 4 stig eftir 3 leiki en aðeins fengið á sig eitt mark. Það mark kom í leik Birmingham gegn Man. Utd. á Old Trafford. Það var því ljóst að Birmingham var sýnd veiði en ekki gefin. Harry Redknapp hélt sig við sama byrjunarlið og mætti West Ham í síðasta deildarleik liðsins. Það var greinilegt á uppstillingu Birmingham hvað Alex McLeish stjóri Birmingham ætlaði sínum mönnum í leiknum. Liðinu var stillt upp í leikkerfið 4-5-1 og greinilegt að Birmingham ætluðu að liggja til baka og treysta á skyndisóknir.

 

Leikurinn fór heldur betur fjörlega af stað og frá fyrstu mínútu pressuðu Tottenham leikmenn Birmingham mjög framarlega á vellinum og stjórnuðu leiknum algjörlega. Tölfræðin um hvort liðið væri meira með boltann voru sláandi. Á 20 mínútu sáust t.a.m tölur um að síðustu 5 mínúturnar hafði Tottenham verið 89% með boltann á móti aðeins  11% Birmingham manna.  Það má segja að það hafi verið stórskotahríð að marki Birmingham allan fyrri hálfleikinn. Oft á tíðum mátti litlu muna, en þrátt fyrir það kom náðu leikmenn Spurs aðeins einu skoti á rammann allan fyrri hálfleikinn. Á 7 mínútu kom fyrsta og eina skot leikmanna Tottenham á rammann þegar Modric stakk sér fram hjá Larson og gaf boltann inn í teig, en Keane náði ekki til boltans. Boltinn brast þá til Lennon sem var við vítateiginn og skaut að marki en Hart í markinu varði vel. Larson í liði Birmingham átti eina færi Birmingham í fyrri hálfleik en skot hans fór hárfínt fram hjá stönginni. Á 42. mínútu átti svo Modric gott skot sem fór rétt fram hjá stönginni.

Seinni hálfleikur byrjaði með skiptingu hjá Spurs. Ledley King varð að víkja af velli vegna meiðsla og inná kom Hutton. Corluka fór því miðvörðinn á meðan Hutton tók stöðu hans í hægri bakverðinum. Spurs varð fljótlega fyrir öðru áfalli þegar Lee Bowyer sparkaði að því er virtist óviljandi í Modric sem lá óvígur eftir á vellinum. Í ljós átti eftir að koma að Modric hafði fótbrotnað. Í stað Modric kom hinn hávaxni Peter Crouch sem átti heldur betur eftir að breyta leiknum.  Eftir innkomu Crouch fóru æ fleiri sóknir Spurs að enda með færum.  Á 59. mínútu kom fyrsta skotið á ramman í síðari hálfleik þegar Crouch náði skalla á markið, Hart átti þó ekki miklum vandræðum með það. Hvert færið rak annað upp við mark Birmingham og ljóst að eitthvað varð undan að láta. Á 65. mínútu átti Crouch skalla í slánna og mínútu síðar hreinsuðu leikmenn Birmingham boltann af marklínu. Á 72. mínútu kom svo markið sem lá í loftinu. Crouch skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham og fyrsta mark leiksins og jú, það var skallamark eftir aukaspyrnu Huddlestone.  Staðan því orðin 1-0 og stuðningsmönnum Tottenham létt, enda orðnir langeygir eftir marki, þar sem Spurs hafði legið í stórsókn allan leikinn. Það kom því eins og blaut tuska framan í leikmenn og stuðningsmenn Tottenham þegar leikmenn Birmingham jöfnuðu metin 3 mínútum síðar þegar Bowyer „potaði“ lausum bolta í mark Tottenham. Það var greinilegt að þetta gaf leikmönnum Birmingham byr undir báða vængi því næsta korterið voru það þeir sem fengu færin. Allt leit út fyrir jafntefli og voru sumir aðdáendur Tottenham farnir heim á leið þegar komið var fram á 95. mínútu. Þá unnu leikmenn Tottenham boltann á eigin vallarhelmingi og Pavlyuchenko sem hafði komið inná sem varamaður átti sendingu á Aaron Lennon sem lét skotið vaða við vítateigslínuna og þvílíkt skot! Boltinn söng í netinu og stuðningsmenn Tottenham ærðust af fögnuði. Lokatölur því 2-1 og Tottenham hefur því unnið fyrstu 4 leiki tímabilsins og enn erum við á toppi deildarinnar ásamt Chelsea með fullt hús stiga.

 

Liðið: Cudicini, Corluka, Bassong, King (Hutton, 45), Ekotto, Lennon, Placios, Huddlestone, Modric (Crouch, 49), Defoe (Pavlyuchenko, 80), Keane

 

EKG