Tottenham festi í dag kaup á króatíska landliðsmanninum Niko Kranjcar. Kranjcar hittir fyrir tvo samherja sína í króatíska landsliðinu hjá Spurs, þá Luka Modric og Vedran Corluka. Kranjcar sem er 25 ára miðjumaður kom til liðsins frá Portsmouth fyrir að því er talið er 2,5 milljónir punda. Kranjcar spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni 1. Oktober árið 2006 gegn Tottenham á WHL. Það er ljóst að Kranjcar er síðasti leikmaðurinn sem Tottenham kaupir á þessu ári þar sem félagaskiptaglugginn lokaði fyrr í dag.
Við bjóðum Kranjcar velkominn til liðs við Tottenham og óskum honum góðs gengis.






