Robinson með mark tímabilsins

0
579

Tottenham tók á móti Watford í gær laugardag og vann nokkuð samfærandi 3-1. Jol hvíldi Bebatov, Keane og Lennon fyrir leikinn á mánudag við Chelsea í FA bikarnum. Einnig varð hann að gera breytingar vegna meiðsla Tainio, Zokora og Gardner. Rocha var með Dawson í vörninni og miðjuna skipuðu Ghaly, Hudd, Steed og Jenas sem var að koma aftur eftir að hafa misst af þremur leikjum vegna meiðsla. Robinson kom í markið eftir að hafa verið meiddur.

Fyrri hálfleikur var lítið fyrir augað en við höfðum þó yfirhöndina. ÞAð var svo á 41. mínútu að Chimbonda átti fyrirgjöf sem Jenas stökk upp í og skallaði inn. Við jukum svo forustuna á 62. mínútu með marki sem á eftir að vera lengi minnst og er örugglega eitt besta mark tímabilsins. Tottenham fékk aukaspyrnu út við hliðarlínu á móts við vítateigshorn á okkar vallarhelmingi. Robinson tók spyrnuna en of fast fyrir Mido að ná en í þess stað skoppaði boltinn fyrir milli varnarinnar og markmanns Watford og yfir markmannin og í markið. Þetta mun vera annað markið sem Robinson gerir en hann gerði mark fyrir Leeds tímabilið 2003-2004 með skalla.
Við náðum svo þriggja marka mun þegar Ghaly skoraði á 85. mínútu. Fyrir klaufaskap fengum við svo á okkur mark á loka mínútum leiksins en öruggur sigur var þá í höfn. Með þessum sigri er liðið búið að krafla sig upp í Efrópusæti (6. sæti) aftur en það gæti þó breyst í dag sunnudag ef Everton nær stigi af Arsenal.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Dawson, Rocha, YP Lee (Stalteri, 79), Ghaly, Jenas, Huddlestone, Malbranque (Lennon, 71), Mido, Defoe. Varamenn: Cerny, Berbatov, Keane.