Tottenham fallið úr FA bikarnum

0
614

Þrátt fyrir að eiga góðan leik gegn Chelsea þegar liðin mættust aftur eftir jafnteflið á Brúnni dugði það ekki gegn Chelsea. Leikurinn endaði 1-2 og gerði Keane mark okkar úr víti sem Tottenham fékk eftir að Berbatov var felldur í teignum.

Það var viðbúið að Chelsea léki ekki jafn illa í vörninni og í fyrri leiknum sérstaklega vegna þess að Terry var mættur aftur. Framherjar okkar og Lennon áttu í basli með að finna pláss og Chelsea menn náðu að setja fyrir hvern leka áður en við gátum nýtt okkur hann. Því fór sem fór.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Dawson, Rocha (Stalteri, 84), YP Lee, Malbranque (Defoe, 64), Zokora, Jenas, Lennon, Keane, Berbatov. Varamenn: Cerny, Huddlestone, Ghaly.