Sigur á Dortmund tryggði sigur á mótinu

0
505

Tottenham sigraði Borussia Dortmund í síðari leiknum á Feyenoordmótinu og með sigrinum tryggði liðið sér sigur á mótinu sjálfu. Leiknum lauk með 3-0 sigri og voru það þeir Bent, Dos Santos og O´Hara sem skoruðu mörkin.

Eins og í fyrri leiknum stillti Ramos upp nokkuð sterku liði. Gomes var sem fyrr á milli stanganna og vörnin var skipuð þeim Zokora, Dawson, Huddlestone og Gilberto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, O´Hara og Bale og frammi voru þeir Dos Santos og Bent. Á bekknum sátu þeir Jansson, Gunter, Ekotto,  Smith, Modric, Lennon og Berbatov.

Fyrsta færi leiksins fengu þjóðverjarnir þegar Petric hljóp upp vinstri kantinn og skaut að marki en boltinn fór vel framhjá. En áhorfendur þurftu ekki að bíða lengi eftir marki. Á 9.mínútu þegar Gilberto gaf boltann fyrir á Jenas sem gaf beint á Bent fyrir framan markið. Bent tók við boltanum, sneri sér við og þrumað boltanum framhjá Weidenfeller í markinu. Stuttu síðar munaði litlu að Jenas og Bent næðu að skapa annað mark. Jenas gaf á Bent sem reyndi svo sendingu á Dos Santos en náði ekki að gefa nógu góðan bolta. Fyrir hálfleikshlé áttu leikmenn Dortmund tvö hættuleg færi og með smá heppni hefðu þeir getað jafnað leikinn. Petric skaut rétt yfir þverslánna úr aukaspyrnu og Valdez skaut rétt framhjá stönginni. Staðan í hálfleik var því 1-0 fyrir Tottenham.

Ramos gerði tvær skiptingar í hálfleik. Bent og Bale fóru af velli og inná komu Berbatov og Lennon. Dos Santos átti ágætisfæri strax í upphafi síðari hálfleiks en boltinn fór framhjá markinu. Bentley fékk einnig færi og Gomes fékk svo aðeins að hreyfa sig í leiknum þegar hann varði skot frá Valdez. Á 54.mínútu kom svo annað mark leiksins. Jenas gaf góða sendingu inn fyrir á Dos Santos kom boltanum í netið og var þetta hans fyrsta mark fyrir félagið. Gunter kom svo inná fyrir Bentley og Adam Smith, ungur strákur úr varaliðinu, kom inná í stað Jenas. Smith fór þá í bakvörðinn og Zokora á miðjuna. Og Smith lét sko vel vita af sér í leiknum. Lennon gaf góða sendingu á Smith eftir gott samspil þeirra á hægri kantinum. Smith kaus svo að senda boltann fyrir markið í stað þess að skjóta sjálfur og þar kom O´Hara hlaupandi og skoraði þriðja og síðasta mark leiksins. Með þessum sigri tryggði liðið sér sigur á mótinu  með fullt hús stiga og markatalan var ekki af verri endanum, 5 mörk skoruð og haldilð hreinu í báðum leikjunum.

Lið Spurs: Gomes; Zokora, Dawson, Huddlestone, Gilberto; Bentley (Gunter, 62), Jenas (c) (Smith, 71), O’Hara, Bale (Lennon, 45); Giovani; Bent (Berbatov, 45) 
Ónotaðir varamenn: Jansson, Assou-Ekotto, Modric

DEILA
Fyrri fréttSigur gegn Celtic
Næsta fréttVarnarmaður lánaður