Tottenham vann fyrri leik sinn á Feyenoord mótinu í Hollandi þegar þeir mættu liði Celtic. Ramos stillti upp sterku liði og lék liðið góðan bolta og uppskar sigur á skosku meisturunum. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og voru það þeir Bent og Bentley sem skoruðu mörkin en þetta var fyrsta mark Bentley fyrir Spurs, en hann gekk til liðs við félagið í vikunni.
Ramos stillti upp mun sterkara liði í þessum leik heldur en í öðrum æfingaleikjum enda mun sterkari aðili sem liðið mætti núna. Gomes var mættur á ný í markið og í vörninni léku þeir Zokora, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Jenas og Modric og frammi þeir Berbatov og Bent. Á bekknum sátu þeir Jansson, Gunter, Gilberto, Bale, Bentley, King og O´Hara.
Fyrsta færi Tottenham í leiknum fékk Jenas og var það sannkallað dauðafæri. Lennon gaf sendingu fram á Bent sem gaf góða fyrirgjöf fyrir markið á Jenas sem skallaði boltann í átt að markinu. Skallinn var hins vegar ekki nógu góður og Boruc átti ekki í vandræðum með að ná boltanum. En fyrsta mark leiksins kom á 25.mínútu eftir gríðarleg mistök Celtic manna. Hartley gaf boltann aftur á Boruc, markmann Celtic, en Bent náði að komast inn í sendinguna og sendi boltann í netið framhjá Boruc. Bent átti möguleika á að skora annað mark þremur mínútum fyrir hálfleikshlé eftir góða sendingu inn fyrir frá Modric en Boruc varði vel og því var staðan 1-0 í hálfleik fyrir Tottenham.
Ramos gerði tvær skiptingar í hálfleik. Woodgate og Lennon fóru af velli og inná komu vinirnir Bale og Bentley, en þetta var fyrsti leikur Bentley fyrir félagið enda gekk hann til liðs við Spurs í vikunni. Litlu munaði að hann næði að senda boltann inn fyrir á Berbatov á upphafsmínútum seinni hálfleiks en sendingin var aðeins of föst. Bent var nálægt því að komast í ágætisfæri eftir sendingu frá Modric og sá síðarnefndi átti möguleika á að skora sitt annað mark fyrir félagið stuttu síðar eftir góða sendingu frá Berbatov en inn fór boltinn ekki. Leikmenn Tottenham léku góðan bolta og héldu boltanum vel. Á köflum leit leikurinn út eins og æfing í sendingum þar sem leikmenn Celtic áttu í mesta basli með að ná boltanum. Eftir 62 mínútna leik kom King inná fyrir Huddlestone og stuttu síðar munaði litlu að Bale næði að skalla boltann í netið. Á 79.mínútu tókst Tottenham svo loks að bæta við forystuna og var það svo sannarlega verðskuldað. Bale gaf sendingu fyrir markið frá vinstri hlið vítateigsins og var sendingin ætluð Berbatov sem var kominn inn að markteignum. Berbatov náði ekki boltanum heldur fór hann í Boruc í markinu. Boruc náði þó ekki að halda boltanum heldur barst hann út í teiginn þar sem Bentley var vel staðsettur og skaut boltanum í netið. Fyrsta mark hans fyrir félagið í sínum fyrsta leik og hann virtist svo sannarlega ánægður með það. O´Hara og Gunter komu svo inná á 83.mínútu í stað Zokora og Modric en fleiri urðu mörkin ekki og leiknum lauk með sigri Tottenham.
Seinni leikurinn í þessu móti er á sunnudaginn þegar liðið mætir Borussia Dortmund, en þeir lögðu Feyenoord að velli í gær 2-1. Leikurinn hefst kl.15:45 á sunnudaginn.
Lið Spurs: Gomes; Zokora (Gunter, 83), Dawson, Woodgate (Bale, 45), Assou-Ekotto; Lennon (Bentley, 45), Huddlestone (King, 62), Jenas, Modric (O’Hara, 83); Berbatov, Bent. Ónotaðir varamenn: Jansson, Gilberto






