Lið Tottenham er nú komið til Hollands þar sem það tekur þátt í æfingamóti ásamt Feyenoord, Celtic og Borussia Dortmund. Tottenham mun leika tvo leiki, við tvö síðarnefndu liðin. Fyrst tekur liðið á móti Celtic í dag og hefst leikurinn kl.16:30 að íslenskum tíma. Liðið mætir svo Borussia Dortmund á sunnudaginn og sá leikur hefst kl.15:45. Báðir leikirnir eru sýndir á sky sjónvarpsstöðinni og að sjálfsögðu munu þeir verða sýndir á Wembley (Ölveri).
Nýjustu fréttirnar
Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026 (UPPSELT)
Daginn Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027Farið verður á leik Tottenham - Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,...







