Tottenham lagði Leyton Orient í árlegum leik þessara liða en þessir æfingaleikir eru hluti samnings milli liðanna þar sem varalið Spurs fær að nota heimavöll Orient fyrir leiki sína. Leiknum lauk með 5-1 sigri Tottenham þar sem Bent skoraði þrennu í annað skipti á 3 dögum. Hin mörkin tvö skoruðu þeir Lennon og Modric. Mark Orient manna skoraði Demetriou.
Fyrri hálfleikur var ekkert sérstakur hjá leikmönnum Spurs og lentu þeir snemma undir í leiknum. Demetriou, leikmaður Leyton Orient, skaut þrumuskoti að marki og smell hitti boltann efst í hægra hornið. Jansson gat lítið gert við þessu. Heimamenn voru svo nálægt því að bæta við öðru marki en Jansson náði að verja í horn. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik og var staðan því 1-0 í hálfleik heimamönnum í vil.
Það tók leikmenn Spurs ekki langan tíma að jafna leikinn því eftir aðeins 47 sekúndur í seinni hálfleik kom Bent boltanum í net heimamanna. Dos Santos tók hornspyrnu og Bale reyndi skot en markmaður heimamanna varði boltann sem barst þó í fætur Bent og hann átti ekki í vandræðum með að skora. Einungis mínútu síðar náðu leikmenn Tottenham forystu í leiknum. Zokora gaf fyrirgjöf fyrir markið og enginn annar en Lennon skallaði boltann í netið. Á 51. mínútu skoraði Modric sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir góða sendingu frá Lennon. Jenas fékk svo ágætis færi en náði ekki að nýta það. Stuttu síðar var hann aftur á ferð og gaf þá stungusendingu á Bent sem kláraði færið. Staðan orðin 4-1 fyrir gestina. Í fimmta og síðasta markinu var Bent svo aftur á ferð. Dos Santos gaf góða sendingu á hann og hann þakkaði fyrir sig með því að skora og tryggja sér þar með þrennu í leiknum. Þetta var hans sjöunda mark í tveimur æfingaleikjum í þessari viku og greinilegt að Bent hefur tekið skotskóna með sér í leikina. Leiknum lauk svo með 5-1 sigri Tottenham, líkt og í leiknum á mánudaginn.
Lið Spurs: Jansson, Gunter (Assou-Ekotto, 46), Bale (Townsend, 66), Zokora (Adam Smith, 60), Huddlestone, Lennon, Bent, Gilberto (Jenas, 46), Modric (O’Hara, 60), Taarabt (Dos Santos, 60), Dawson. Ónotaðir varamenn: Gomes






