Það voru margir Spursarar sem önduðu léttar eftir að Tottenham tryggði sér sigur í leiknum við Blackburn um helgina. Loksins kom sigur þó hann hafi verið tæpur. Það verður ekki af Blackburn tekið að þeir léku vel sérstaklega í seinni hálfleik.
Jol setti Tainio, Jenas og Keane inn í liðið svo Murphy og Defoe ásamt Lennon voru á varamannabekknum ásamt Davenport og Cerny. Við byrjuðum ágætlega og strax á 9. mínútu gerði Keane stórkostlegt mark eftir að hafa tætt í sig vörn Blackburn. Hann var svo aftur á ferð á 42. þegar hann var fyrstur til að bregðast við þegar Friedel varði aukaspyrnu Mido án þess að halda boltanum og eftir leikurinn var auðveldur fyrir Keane. Því miður komu varnarmistök strax í kjölfarið og Pongolle minkaði muninn fyrir hlé. Í seinni hálfleik bættu Blackburn menn við og náðu að jafna eftir önnur varnarmistök en King náði ekki að skalla boltann frá heldur datt hann fyrir fæturnar á Blackburn manni sem gaf á Bellamy sem afgreiddi boltann í netið. Nú héldu margir að við værum komnir í sama skítin og undanfarið og bjuggust við að Blackburn bætti bara í. En Lennon sem hafði komið inn á fyrir Davids nokkru áður komst upp að endamörkum nálægt markinu og sendi fína sendingu þvert fyrir markið á 70. mínútu á Mido sem kom þar aðvífandi og setti tuðruna í þaknetið innanvert. Loksins sáum við þá baráttu sem var í liðinu fyrr á tímabilinu eftir að þeir jöfnuðu og það skilaði þessum 3 stigum. Næsti leikur verður mjög erfiður en vonandi náum við stigi eða stigum úr honum. Það er kominn tími til.
Liðið: Keane, Mido, Tainio (Murphy 76) Davids (Lennon 58) Carrick, Jenas, Dawson, King, Lee, Stalteri, Robinson
Varamenn: Defoe, Cerny, , Murphy, Davenport,






