Tap á Old Trafford

0
653

Tottenham tapaði leik sínum gegn Manchester United sem háður var á Old Trafford 0-1. Eina mark leiksins skoraði Nani á 69.mínútu.

Martin Jol gat loksins stillt upp Gareth Bale sem kom til liðsins í sumar en hann meiddist í sínum fyrsta æfingaleik. Robbo var sem fyrr í marki, Chimbonda, Rocha, Gardner og Lee skipuðu varnarlínuna en ennþá eru nokkrir varnarmenn á sjúkralista. Á miðri miðjunni spiluðu þeir Jenas og Huddlestone en þeir áttu báðir góðan leik gegn Derby. Á hægri kanti spilaði Malbranque og Bale spilaði stöðu vinstri kantmanns í sínum fyrsta úrvalsdeildarleik fyrir Tottenham. Frammi voru svo þeir Berbatov og Keane.

Leikmenn Tottenham voru greinilega staðráðnir í að láta ekki atburði sl.viku hafa áhrif á leik sinn og voru hungraðir í sigur. Það tók þá ekki nema 22 sekúndur að eiga sitt fyrsta færi og hættulegt var það. Keane átti gott skot að marki í hægri hornið, boltinn fór yfir Van der Sar en lenti svo í slánni og fór yfir. Þetta var nú ekki eina færi Tottenham því Gardner, Chimbonda, Berbatov og Rocha komust allir í ágætisfæri en inn vildi boltinn ekki. Ekki var þó um neina einstefnu Spurs að ræða og United áttu sín færi. Scholes átti hættulegt skot rétt yfir markið og Nani átti einnig gott færi. En ekkert mark kom þó í fyrri hálfleik þó nóg hefði verið um marktækifæri og staðan því 0-0 í hálfleik.

Bæði lið mættu til leiks í seinni hálfleik staðráðin í að hirða öll stigin. Fyrsta færi hálfleiksins átti Huddlestone með skot af löngu færi en það fór framhjá. Á 55.mín fékk Tottenham aukaspyrnu sem Bale tók og rataði beint á kollinn á Rocha sem var staðsettur beint fyrir framan markið en skallaði framhjá. Eftir þetta gerðu United breytingu á liðinu, Carrick var tekinn af velli og Eagles kom inná í hans stað. Tottenham hélt áfram að sækja og á 63. mín náði Bale boltanum af Ferdinand, tók á sprett upp völlinn gaf svo fyrir á Berbatov sem var felldur af Vidic. Dómarinn vildi ekki meina að þetta væri víti þó að um það megi deila. En þegar Berbatov var felldur náði hann þó að pota aðeins í boltann og rann hann í áttina að markinu en Ferdinand kom aðsvífandi og bjargaði á línu. Ekki var þetta þó eina vafaatriðið í leiknum því stuttu síðar var Berbatov kominn í hættulegt færi og skaut að marki en Wes Brown varði á marklínu með, að því er virtist, efri handlegg sínum. Leikmenn Tottenham heimtuðu allir vítaspyrnu en dómarinn var á öðru máli. Stuttu eftir þetta komust United menn í sókn og Nani skaut þrumuskoti sem kom aðeins við Tevez og inn fór boltinn. Robinson var ekki langt frá því að verja en glæsilegt mark hjá Nani þó og staðan 1-0 fyrir Manchester United. Martin Jol ákvað að gera strax breytingu á liðinu í þeirri von um að ná að jafna leikinn enda hafði liðið ekkert átt minna í leiknum en United. Defoe og Taarabt komu inná og útaf fóru þeir Lee og Keane. Bale bakkaði þá í vinstri bakvörðinn og Taarabt fór á vinstri kantinn. Ekki var þó mikið um dauðafæri en nokkur markskot voru þó á báða bóga. Á 83.mín kom Zokora inná í stað Rocha. Berbatov komst svo næst því að skora þegar hann lék glæsilega á leikmann United inni í teig og skaut að marki en boltinn straukst rétt yfir hægra hornið.  Lokastaðan var því 1-0 sigur fyrir Manchester United.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Rocha (Zokora 83), Gardner, Lee (Taarabt 75), Malbranque, Jenas, Huddlestone, Bale, Keane (Defoe 75), Berbatov.

Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri.

 

DEILA
Fyrri fréttStórsigur á Derby
Næsta fréttJenas semur til 2012