Tottenham vann sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir lögðu Derby í sannkallaðri markaveislu á White Hart Lane. Leiknum lauk með 4-0 sigri Spurs og voru það þeir Steed Malbranque (2), Jermaine Jenas og Darren Bent sem skoruðu mörkin.
Martin Jol stillti upp gjörólíku liði í leiknum í dag. Robinson var þó sem fyrr í marki en Lee var orðinn leikfær og var því velkominn í vinstri bakvarðarstöðuna. Chimbo, Gardner og Rocha skipuðu restina af vörninni. Routledge og Malbranque voru á köntunum og Jenas og Huddlestone á miðjunni. Frammi voru þeir Bent og Keane.
Tottenham liðið kom ákveðið til leiks og það liðu ekki nema 74 sekúndur þar til fyrsta mark leiksins var skorað. Jenas tók aukaspyrnu og sendi á Malbranque sem var við vítateigslínuna, hann tók snyrtilega við boltanum og skaut lágum bolta í vinstra horn marksins og í netið fór hann þrátt fyrir góða tilraun markmannsins að verja. En Malbranque var sko ekki hættur. Á 6.mín sendi Huddlestone langan bolta frá miðju út á hægri kantinn til Chimbonda sem sendi stutta sendingu á Bent. Bent gaf svo boltann fyrir, boltinn fór framhjá tveimur Spursurum en rataði þó til Malbranque sem staðsettur var á svipuðum stað og í fyrra markinu en í þetta skiptið skaut hann háum bolta í vinstra hornið og skoraði fallegt mark. Huddlestone átti svo hættulegt skot nokkru síðar en skaut rétt yfir. Á 15. mín fékk Jenas boltann nálægt miðjunni, tók á sprettinn og hljóp í átt að markinu. Hann ákvað svo að klára dæmið sjálfur og skaut framhjá markmanninum í innanverða stöngina og í netið fór boltinn. Korter búið af leiknum og staðan orðin 3-0. Tottenham var mun betra liðið í fyrri hálfleik og átti allmörg skot, sum hættulegri en önnur. Á 32.mínútu skoraði Routledge svo mark en það var dæmt af vegna rangstöðu. Á sjónvarpsupptöku sést þó að Routledge var réttstæður en Bent var fyrir innan, en hafði þó ekki áhrif á leikinn og því hægt að færa rök fyrir því að markið hafi verið ranglega dæmt af. Ekki var þetta þó eini undarlegi dómurinn því amk tvisvar hefði verið hægt að dæma Tottenham víti í hag. Í annað skipti kýldi leikmaður Derby boltann útaf eftir fyrirgjöf Tottenham leikmanns og í hitt skiptið var Bent felldur í teignum en dómarinn dæmdi að leikur skyldi halda áfram. Tottenham átti þó fleiri tilraunir í fyrri hálfleik og einu sinni þurfti Robbo að taka á honum stóra sínum á hinum enda vallarins. En staðan í hálfleik var 3- 0.
Leikmenn Derby mættu aðeins ákveðnari til leiks í seinni hálfleik en sáu þó aldrei til sólar í honum frekar en þeim fyrri. Þeir áttu þó gott skot að marki þegar Teale skaut hörkuskoti en Robbo kastaði sér og náði að verja með fingurgómunum. Leikmenn spurs áttu nokkur markskot en engin verulega hættuleg. Á 71.mínútu kom að fyrstu skiptingunni hjá Martin Jol. Routledge fór af leikvelli og inná kom Adel Taarabt og sá hann um að skemmta áhorfendum það sem eftir lifði leiks. Hann sýndi mikinn ákafa og ekki vantaði upp á sjálfstraustið hjá honum og á eftir að vera spennandi að fylgjast með þessum unga og efnilega leikmanni í framtíðinni. Defoe kom svo inná á 76.mínútu fyrir Robbie Keane. Það var svo á 80.mínútu að aftur dró til tíðinda í leiknum. Huddlestone tók aukaspyrnu og sendi fyrir markið þar sem Chimbonda skallaði en Baywater náði að verja boltann í slána. Boltinn barst þó út í teiginn þar sem Defoe og Bent komu báðir hlaupandi og var það á endanum Bent sem kom boltanum í netið. Chimbonda var svo tekinn útaf og inná kom Zokora. Ekki urðu mörkin þó fleiri og lokastaðan því 4-0.
Lið Spurs: Robinson, Chimbonda (Zokora 80), Rocha, Gardner, Lee, Routledge (Taarabt 71), Jenas, Huddlestone, Malbranque, Bent, Keane (Defoe 76).
Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri.






