Tottenham tilkynnti í dag að tekist hefðu samningar við Middlesbrough um sölu á Mido. Hossam Ahmed Mido, eins og hann heitir fullu nafni, gekk til liðs við okkur í janúar 2005 á 18 mánaða lánssamning og var svo keyptur sl. sumar. Hann náði þó ekki að festa sig í sessi á síðustu leiktíð og átti einnig við meiðsli að stríða hluta af tímabilinu. Hann hefur nú ákveðið að ganga til liðs við Middlesbrough og óskum við honum alls hins besta hjá nýju liði!






