Tímabilið hefst á tapi

0
561

Tottenham tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn nýliðum Sunderland á útivelli, 1-0 en það var Michael Chopra sem skoraði mark Sunderland í uppbótartíma.

Martin Jol stillti upp ágætu liði en meiðsli settu strik í reikninginn. Robinson var sem fyrr í marki. Vörnina skipuðu þeir Chimbonda, Kaboul, Gardner og Stalteri en mikil meiðsli eru hjá varnarmönnum liðsins og sá nýjasti til að bætast í hópinn var Dawson sem meiddist á æfingu á föstudaginn. Á miðjunni spiluðu Tainio, Jenas, Zokora og Malbranque og framherjaparið var skipað þeim Keane og Berbatov.

 

Leikurinn var ekki mikið fyrir augað. Sunderland barðist mikið í leiknum og ætluðu sér ekki að verða auðveld bráð. Leikmenn Tottenham virtust hins vegar ekki með hugann við leikinn. Leikur Spurs einkenndist t.a.m. mikið af löngum spörkum fram á við í von um að hitta á samherja en lítið var um gæða spilamennsku manna á milli.

 

Fyrsta færi spurs átti  Jenas á 11. mínútu en það skot var langt framhjá markinu. Tottenham átti nokkur hálffæri í leiknum en ekkert sem ógnaði nýjum markverði Sunderland. Sunderland átti einnig nokkrar tilraunir og fengu þeir eitt hættulegt færi í fyrri hálfleik. Gardner gerði sig sekan um mistök í vörninni sem leiddi til þess að Darryl Murphy komst einn á móti Robinson en sá síðarnefndi gerði vel og varði boltann.

 

Fimm mínútum fyrir leikhlé gerðist svo atvik sem deila mætti um. Berbatov var kominn í vítateig Sunderland og í ágætisfæri þegar leikmaður Sunderland virtist bregða fyrir honum fæti og hrinda honum örlítið. Dómarinn var vel staðsettur beint fyrir framan þá og dæmdi að leikurinn skyldi halda áfram og ekkert athugavert væri við þetta. Í endursýningu má sjá að vissulega var um smá snertingu að ræða en hvort hún hafi verið næg til að gefa víti er í höndum dómarans og hann kaus að láta leikinn halda áfram. Í hálfleik var staðan því 0-0.

 

 

Seinni hálfleikur var ekki ósvipaður þeim fyrri og spilamennskan ekki í hæsta gæðaflokki. Á 59.mínútu var Tainio skipt útaf og kom Bent inná og fór Keane þá á vinstri kantinn. Ekki breytti þessi skipting miklu fyrir leik Tottenham.

 

Kaboul komst nálægt því að eiga færi en löngum bolta var spyrnt í átt að marki Sunderland og Kaboul tók á sprettinn en rétt mistti af boltanum til Sunderland leikmanns. Á 77.mín kom Defoe inná í skiptum við Berbatov og á 87. mín kom Huddlestone inná fyrir Zokora. Defoe setti lítinn svip á leik liðsins en Huddlestone átti gott færi og eflaust hættulegasta færi Tottenham í leiknum þegar hann átti þrumuskot af löngu færi en ekki fór boltinn þó inn.

 

Allt stefndi í markalaust jafntefli en þá var  3 mínútum var bætt við leiktímann. Tottenham átti í mesta basli með Sunderland á þessum lokamínútum leiksins. Etuhu fékk t.a.m. sendingu þar sem hann var einn og óvaldaður í markteig Spurs og skaut að marki en Robinson varði meistaralega. En Robinson gat lítið gert á lokasekúndum leiksins þegar Chopra, sem var frír í teignum, fékk boltann eftir fyrirgjöf frá hægri kantinum, gerði engin mistök og skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma.

 

 

Ljóst er að með spilamennsku eins og sást í dag er liðið ekki að taka neinum framförum og 4.sætið virðist ansi fjarlægur draumur. Þetta var þó fyrsti leikur tímabilsins gegn liði sem mun eflaust komast langt á baráttuanda sínum og vonum bara að okkar menn taki sig á í andlitinu og mæti tvíefldir til leiks næsta þriðjudag þegar Everton kemur í heimsókn á White Hart Lane.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Stalteri, Kaboul, Gardner, Tainio (Bent 59), Jenas, Zokora (Huddlestone 87), Malbranque, Keane, Berbatov (Defoe 77). Ónotaðir varamenn: Cerny, Rocha.

DEILA
Fyrri fréttMinni á tippleikinn!!!
Næsta fréttMido seldur